Heimilisblaðið - 01.07.1957, Blaðsíða 44
r
Drekkið meiri mjólk
Vaxandi neyzla mjólkur og mjólkurafuiða er talandi vottui'
þess, að skilningur almennings er vakinn á gildi þeii-rar fæðu,
er reyndist bezta björgin, er harðast kreppti að þjóðinni.
Borðið meira smjör
Þó að vaxandi skilningur sé á gildi mjólkurafurða í þjóðai-
fæðinu, skortir enn á, að neyzla mjólkurafurða sé nóg.
Neytið meiri osts
Víða um heim er hafin sókn til að útrýma fæðuskortinum.
Alls staðar er ráðið hið sama: aukin neyzla landbúnaðarvara,
einkum mjólkurvara.
fslendingar! Eflið eigin framleiðslu. Neytið meiri mjólkur
Neyzla mjólkurvara í mjög ríkum mæli er grundvöllur nær-
ingarríks fæðis. Þar eð nokkuð stór hópur manna hefur ekki
athugað þetta, er þeim brýn nauðsyn að auka neyzlu mjólkur
og mjólkurvara.
Hraust æska neytir meiri mjólkur
Það er kappsmál allra þjóðhollra manna, að þjóðin búi við
hollasta fæðuval, sem kostur er á. Hér á landi eru öll skilyrði
til að framleiða gnótt þeirrar fæðu, sem þýðingarmest er í
þjóðarfæðinu.
Meiri mjolL smjör og osta
s..
176 — HEIMILISBLAÐIÐ