Heimilisblaðið - 01.01.1963, Blaðsíða 18
< Mynd þessi af hinum kunna
rússneska nóbelsverðlaunahafa
L. D. Landau og er tekin í
stúdentasamkvæmi í Moskvu
s.l. ár. Nú liggur hann rúm-
fastur vegna heilasköddunar,
sem hann hlaut í bílslysi.
í haust sem leið gxúfði eitruð
þoka yfir London. í hundraða-
tali veiktist fólk af eitrun og
um sjötíu manns létust. Einu
farartækin sem héldu uppi
reglubundnum ferðum voru
neðanjaröarbrautirnar. >
< í Zlirich hafa lögregluyfir-
völdin látið setja upp slíka
viðvörunarskápa. Óski einhver
að ná sambandi við lögregluna
styður hann á hnapp og fær
þá samband við næstu lög-
reglustöð með hjálp hljóðnema
og hátalara.
Super Starfighter F-1096-þot-
ur er gott framlag til loft-
varna NATO-rikjanna. Sjö
lönd, þ. á m. Danmörk, munu
nota þessa tegund. Starfighter-
þotur eiga bæði hraða- og
hæðarmetin. >
Sjálfur Buffalo Bill hefði star-
að undrandi á þetta skot-
vopn, sem þýzkur leynilög-
reglumaður heldur á. Þetta er
heimatilbúin byssa, sem var
tekin frá leyniskyttu og er
geymd á safni lögreglunnar í
Hannover. Gikkurinn er bú-
inn til úr auga af skærum,
skaftið er búið til úr rúmbretti.
Af mjög mikilli hugkvæmni
hefur verið komið fyrir vasa-
ljósi á byssunni, til að nota í
náttmyrkri. >
< Það er ekki liðið langt á
þetta ár áður en víðs vegar um
heim hafa verið kosnar feg-
urðardrottningar fyrir árið
1963. Þessi 23ja ára stúlka,
Christiane Luro, var kjörin
fegursta stúlka Marseille-
borgar.
]8
heimilisbla®
0