Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1963, Blaðsíða 23

Heimilisblaðið - 01.01.1963, Blaðsíða 23
EIMilisblaðið < Sue Lynn, hin 16 ára gamla stúlka, sem varð fræg fyrir að leika Lolitu í samnefndri kvik- mynd, sem mjög hefur verið rætt og ritað um. Hún á að leika í kvikmynd, sem gera á um Marilyn Monroe. En myndatökunni verður að hraða, þar sem amerískir sér- fræðingar halda því fram, að Sue Lynn verði orðin 80 kíló áður en hún verður 19 ára. Ný skartgripaverzlun hefur verið opnuð í Paris. Eigandinn er Fred Wander, sem þekktur er fyrir kunnáttu sína í að hlaða eðalsteina radiovirkum geislum, til að fá þá til að skipta litum. Unga stúlkan á myndinni er að reyna eina dýrustu hálsfesti verzlunar- innar, sem metin er á 80 milljónir franka. > < Margrét prinsessa og maður hennar, Snowden lávarður, sjást oft á viðhafnarmiklum góðgerðardansleikjum. Hér sjást þau svífa í dansi. Prá Ameríku er þessi hent- uga tízka komin, hattar, sem nota má hvort sem vill sem höfuðfat eða hárkollu. Unga stúlkan notar hann sem hatt, um leið og hún gerir tilraun með, hvernig úr hattinum má gera hinar fallegustu hár- skrýfingar. > < Þetta fallega par hér á myndinni er Peter Burrows og hin fagra kona hans, Valerie, sem hafa nú i þriðja sinn varið sinn brezka meistaratitil í tvímenningshlaupi á skaut- um. Lundúnabúar eiga sinn perlu- móðurkóng, og í föt hans og f jölskyldunnar þarf ósköpin öll af perlumóðurhnöppum. Hér sést dóttir kóngsins, Linda prinsessa, vera að sauma knappa í búning sinn. >

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.