Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1963, Qupperneq 30

Heimilisblaðið - 01.01.1963, Qupperneq 30
„Annars er þetta bezta aðferðin, ef hægt væri að beita henni, og um það efast ég hreint ekki. Þér hljótið að vera afar ein- kennilegur af ungum manni að vera, og ég hef fyrr haft geðsjúklinga, sem voru skynsamari en þér.“ Henry tók á sig rögg og spurði: ,,Er ann- ars nokkur á hæli yðar, sem í raun og veru er geðsjúkur?" Dr. Paul brá ekki hið minnsta við þessa spurningu. Henry komst síðar að raun um, að það var undir öllum kringumstæðum mjög erfitt að koma dr. Paul úr jafnvægi. Hann lék hlutverk sitt sem heldri maður, og þó var hægt að sannfæra sig um það með því að horfast eitt andartak í augu við hann, að hann var hættulegur og kald- rifjaður andstæðingur, sem setti ekkert fyrir sig. „Ég vona, að þér getið sjálfur komizt að raun um það,“ svaraði hann með sinni óbifanlegu rósemi, sem gerði svar hans miklu skaðrænna fyrir bragðið. Henry leit yfir hópinn. Alice virtist vera full örvæntingar og reyndi árangurslaust að segja eitthvað, en keflið bannaði henni það. Ásjóna Gaby Vallés var eins og gríma. Henry hafði oft orðið var við, að hún leit til hans með virðingu, en nú var andlit hennar sviplaust. Rauðar, ávalar varir hennar, hinar vel löguðu augabrúnir henn- ar og fagur litarháttur kinnanna hefði allt getað verið eins og á sýningarstúlku, sem gerð var úr vaxi. Á hökunni virtust vera rauðir blettir undir farðanum. Þar hafði knýttur hnefi Alicear hitt hana, eða svo hélt hann. Nick stóð grafkyrr með byssuna reiðu- búna og starblíndi á hana gegnum gler- augun. Henry hreyfði annan fótinn lítið eitt til þess að reyna hann og samtímis stríkkaði á öllum vöðvum í líkama Nicks. Honum var ljóst, að það þurfti sérstaka árvekni til þess að villa honum sjónir. „Annars gætuð þér svarað annarri spurningu fyrir mig,“ sagði Henry við dr. Paul. „Þar sem þér ætlið yður augsýni- lega að láta skjóta mig niður eins og hund, ef ég reyni að gera uppsteit, en hvers vegna látið þér ekki gera það sem allra fyrst? Eða þolið þér ekki að sjá blóð?“ „Ég hef ekkert á móti því,“ svaraði lækn- irinn. „En slíkt geri ég ekki, fyrr en í síð' ustu lög. Morð er hættulegur leikur, eins og þér vitið, og vegna líks þarf að gefa annars konar útskýringar. Ég vil he*2 halda líftórunni í yður, en þér verðið » skilja það, hr. Bering...“ og nú varð rödo hans kuldaleg og jafnframt kæruleysisleí af yfirlögðu ráði — „að ég hika ekki and- artak, ef ég á ekki á öðru völ.“ „ „Og gildir hið sama um ungfrú Kerlon • „Nei, hvernig getið þér ímyndað yÖuJ. annað eins. Það mundi eyðileggja allt. Þu er brýn nauðsyn, að hún lifi. Sveikst Þu um að segja þessum nýja vini þínum fia því, stúlka góð? Það finnst mér vera m&' il vanræksla af þinni hálfu. Sjáðu til, h1- Bering! Mitt hlutverk er eingöngu miða við hin skýlausu fyrirmæli frænda hennal í arfleiðsluskránni, sem þér hafið eflau®. heyrt um. Ef Alice dæi, áður en hún y10 tuttugu og fimm ára, yrði öllum auðnun1 skipt á milli ýmissa velgjörðarfélaga. ÞeSS' félög eða stofnanir eru að sjálfsögðu nfa nytsamar, og ég efast ekki um, að frám hennar mundi verða fleiru fólki til en hún mundi geta gert gott á öllum n1'’. ferli sínum, þótt arfurinn félli 1 hemial hlut. En það sem að er séð frá mínu . sjónarhóli er sú staðreynd, að ég er ekk1 einn í hópi þessa fólks... Þér getið ve rið v eí viss um, að öryggi ungfrú Kerlonai jafntryggt hjá mér og hjá sjálfum f()1 setanum.“ _ „Já, þangað til hún er tuttugu og f1111^ ára,“ svaraði Henry. „Og hvers viroi hún svo eftir afmælið?“ n „Tveggja þúsund gínea,“ svaraði hal samstundis. „Og að auki það, sem uU sjálf kann að hafa til að bera. Sjáið til! Þegar ég er búinn að fá peningaI1 ’ getur hún ekkert gert, sem mundi 8 mig órólegan." r * „Þér hefðuð þá ekkert á móti þvl> a flett væri ofan af yður?“ Læknirinn brosti sigri hrósandi á s' „Afhjúpaður! Hvað merkir það?“ sPu\j hann og yppti öxlum. Það versta, sem 8 . orðið, er að byrja á nýjan leik á einhve1^ um öðrum stað á jarðkringlunni, °£ eJ1 hægt að hugsa sér betri kringumstseðu1 ^ að byrja nýjan áfanga í lífinu með a " 30 HEIMILlSBLAh

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.