Heimilisblaðið - 01.01.1963, Síða 41
< Leopold, fyrrverandi kon-
ungur Belgíu, og kona hans,
Liliane prinsessa, óska að fá
að lifa í sátt við almennings-
álitið. Leopold leggur áherzlu
á þetta í tilefni af fregnum,
sem hafa að undanförnu birzt
í heimsblöðunum um hann og
fjöiskyldu hans.
Hin heimsfræga sópransöng-
kona, Renata Tebaldi, sem að
margra áliti er raddfegursta
kona heims, hefur nú snúið
aftur til óperusviðsins, frískari
og grennri en áður. Að undan-
förnu hefur hún ekki komið
fram opinberlega vegna slyss,
sem hún varð fyrir. >
< Það eru þrjátíu ár á milli
þessara tveggja búninga. T. v.
sést flugmaður frá fyrstu dög-
um flugsins, þegar flugvélarn-
ar komust rétt yfir 200 km.
á klst. Hann er í venjulegum
ferðafötum með fallhlífina
hangandi niður á fætur. Hinn
er flugmaður á nútíma þotu,
sem fer tíu sinnum hraðar en
flogið var fyrir þrjátíu árum
síðan.
Þetta er apinn Toby á reið-
hjólinu sínu, sem er smíðað
sérstaklega handa honum.
Hann er mjög vinsæll skemmti-
kraftur í ensku fjölleikahúsi.
>
< Á síðustu kvikmyndahátíð
í Feneyjum voru „stjörnur“
víðsvegar að úr veröldinni.
Þessi mynd er af rússnesku
leikkonunni Bolotova, sem er
að baða sig í sólinni á einni
baðströndinni í borginni.
Nú hefur Frakkland ekki leng-
ur tvenns konar franka, gaml-
an og nýjan. Núverandi franki
samsvarar 100 gömlum frönk-
um. Það verður auðveldara
fyrir frúna á myndinni að
verzla eftir þessa breytingu. >