Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 12
F r amtí ðar draumur Evelynar Smásaga eftir Jean Bonot. Evelyn Latour var niðursokkin í dag- drauma sína, þar sem hún var á heimleið í sporvagninum. í huga sér sá hún myndarlega og hug- ljúfa unga manninn, sem kvöld eitt í apríl hafði ávarpað hana á Rue de la Paix og síðan boðið henni góðgerðir á veitinga- húsi. Hún minntist þess hversu vel vaxinn hann hafði verið, hálsbindið hans í sér- kennilegum lit, fötin samkvæmt nýjasta sniði, og rödd hans þíð og karlmannleg í senn, þegar hann hvíslaði að henni þau blíðuorð, sem lesa má í skáldsögunum. Þegar hann hafði fylgt henni heim að húsdyrum hennar, sagði hann um leið og hann rétti henni höndina í kveðjuskyni: ,,Ef þér gefið mér leyfi til þess, ung- frú, þá mun ég koma um sexleytið eitt- hvert næsta kvöld og bíða yðar, þegar þér komið frá saumastofunni; má ég það ? . . . Ég heiti Eude Laridelle.“ 1 heila viku hafði Evelyn liugsað um þennan myndarlega, ókunna mann, nótt og nýtan dag, manninn sem í hennar augum var öllum þeim dyggðum prýddur, sem hún gat hugsað sér. Gjaldkerinn í tízkuverzluninni, þar sem hún vann, maðurinn sem alltaf var að stíga í vænginn við hana, — hversu lítil- sigldur og óaðlaðandi var hann ekki í sam- jöfnuði við þennan unga mann? Hann hét Retondu. Og svo var hann alltaf að segja lélega brandara og gorta af því, að hann væri mikið gefinn fyrir góðan mat. Eude Laridelle . . . Hún myndi áreiðan- lega hitta hann aftur . . . og áður en langt um liði verða eiginkona hans. Sporvagninn skrölti áleiðis, á meðan litla unga saumakonan lét sig dreyma dag- drauma sína og brosti. Skyndilega nam sporvagninn staðar, eins og kippt hefði verið í hann, og Eve- lyne vaknaði til raunveruleikans á ný. Hversdagsleikinn birtist henni aftur. —- Vagngæzlumaðurinn gekk um og tók við fargjöldum. Ung móðir þaggaði niður í barni sínu, sem grét. Gamall maður sat og lagði kollhúfur. Feitur heldrimaður las dagblað . . . Ósjálfrátt varð Evelyn litið á þann síð- astnefnda, eða öllu heldur á blaðið sem hann las. Augun fögru, sem andartaki fyrr höfðu mænt dreymandi út í loftið, voru nú sem fastnegld við dagblaðið í höndum hins ókunna manns. Hvers konar alvarleg eða athyglisverð fyrirsögn, hvaða hneyksli eða hamfarir náttúruaflanna hafði getað vakið slíka eftirtekt hjá stúlkunni? I miðjum spalta á fjórðu síðu blaðsins hafði Evelyn rekið augun í mynd af Eude Laridelle! En hún gat varla trúað sínum eigin aug- um . . . Hún hallaðist fram á við, til þess að geta séð betur. Nei; það var um ekkert að efast; þetta var hann! Hún fann fyrir ólýsanlegu stolti. Mað- urinn, sem hún hafði orðið ástfangin af við fyrstu sýn, hann var þekktur maður! Var hann skáld, listamaður, fursti, flug- maður eða íþróttamaður ? Hann hlaut alla- vega að hafa afrekað eitthvað, úr því að hann hafði vakið opinbera athygli. Áður en langt um liði myndi frægð hans einnig ná til þessarar óþekktu saumastúlku, sem hann var reyndar ekki búinn að heimsækja ennþá, vegna þess að hann ætlaði sjálf- sagt að gera fyrsta stefnumót þeirra enn- þá skemmtilegra með því að draga það eilítið á langinn . . . Nema þá að . . . ? Skelfingin læstist allt í einu um Evelyn, því að nú kom henni allt í einu í hug, að það voru ekki aðeins hetjur, sigurvegarar og merkismenn, sem fengu myndir af ser í dagblöðunum. Þar mátti einnig daglega sjá myndir af glæpamönnum, morðingjum og innbrotsþjófum, auk þeirra, sem urðu fyrir bílslysum eða öðru óláni. 232 H E I MI LI S B L A Ð I E>

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.