Heimilisblaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 18
Spddómurinn
EFTIR INGER BENTZON
MYNDIRNAR TEIKNAÐl MARIE HJULER
Hjá Hreiðari bónda bjó gamall maður, Ánn að
nafni, sem gat stundum skyggnzt inn í framtíð-
ina. Kvöld nokkurt sagði hann, að sonur Hreið-
ars, Sveinn, mundi fá dóttur Haraldar jarls fyrir
eiginkonu. Á eftir mundi hann ekki, hvað hann
haíði sagt, en Hreiðar talaði við konu sína um
málið. Og þar sem Sveinn var kominn á giftingar-
aldur, og þau gátu gefið honum góða heiman-
fylgju. geðjaðist þeirn vel að spádóminum og
stungu upp á því við hann, að hann færi suður
á bóginn til bústaðar jarlsins. Sveinn var einnig
fús til þess.
Hann fékk langskip og góð klæði og sterka
menn með sér, og Hreiðar ákvað að fara sjálfur
með honum. Þeir fengu góðan byr og heiðskírt
veður og ferðin gekk vel, og þegar þeir komu tii
bústaðar Haraldar jarls, fengu þeir lilhlýðilegar
móttökur. Þeir sátu nokkurn tima um kyrrt í
jarlsgarði, og einn mannanna fleipraði þvi út úr
sér, hvers vegna þeir væru komnir. Loks komst
jarlinn á snoðir um malið og kallaði Hreiðar fyrir
sig og sagði honum, að dót.tir sín væri þegar lof-
uð öðrum manni.
Sveinn hafði á meðan hitt stúlkuna nokkrum
sinnum. Hún hét Hclga, og þó að hún væri falleg,
geðjaðist honum ekki að henni, svo að hann varð
ekkert leiður, þegar faðir hans sagði honum, að
ekkert yrði af hjónabandinu. Hann furðaði sig
aðeins á því, að Ánn garnli heíði birt honurn
ósannan spádóm, þvi að það hafði aidrei kornið
fyrir áður! En Hreiðar sagði, beiskur i bragði,
að það gæti svo sem verið þvaður, sem kæmi af
gömlum vörum, og að hann sæi eftir, að þeir
skyldu hafa farið að heiman.
Þeir dvöldust þó um tima hjá jarlinum og leið
vel á allan hátt, og fengu þeir góðar gjafir, er
þeir héldu á brott. Sveinn hafði séð og lært
margt og sá ekki eftir neinu. Mennirnir höfðu
einnig keypt mikið af varningi, og þeir komu viða
við á heimleiðinni og verzluðu með vörurnar, sem
þeir höfðu keypt. Þess vegna var farið að líða
á árið, þegar þeir tóku stefnuna heim fyrir al-
vöru, og veðrið var ekki lengur ljúft og gott, en
sjór og vindur var á móti.
238
HEIMILISBLAÐIÐ