Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Qupperneq 17

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Qupperneq 17
maris var í hópnum. Hún var fölleit, en himneskur friður hvíldi yfir andliti henn- ar Nú krupu píslarvottarnir niður til þess að biðja saman í síðasta sinn hér á jörð. Þeir stóðu aftur á fætur og biðu nú ró- legir dauðans. Dýrin ráðast á þá. Margir hafa þegar verið tættir sundur. Gríðarstórt tígrisdýr ræðst á Damaris. En áður en það kemst til hennar, verður það fyrir árás bjarn- dýrs. Æðislegur bardagi hefst milli þeirra. Damaris hefur hörfað aftur af skelfingu. Hún stendur titrandi af ótta og starir á bai'dagann milli dýranna. — Þá fellur hvít rós niður fyrir fætur hennar, og rödd, sem hún þekkir, kallar ofan að niður til henn- ar: „Damaris, Kristur Jesús styrki þig nú!“ Hún lítur upp og sér náfölt andlit vinkonu sinnar horfa niður til sín. Ljómandi bros kemur á andlit píslar- vottarins. Vinkona hennar hefur játað trú sina á Krist. Nú getur hún dáið glöð. Hún varpar sér á kné, spennir greipar. — — Skömmu síðar er allt afstaðið. Hún liggur liðið lík á leiksviðinu. Kládía hefur hnigið örmagna í arma manns síns. Leiksýningunni er lokið. Fólkið er farið ur hringleikahúsinu. Það er ánægt með haginn. Grafarþögn grúfir yfir leiksvið- inu, sem þakið er blóði og líkum. En í einu hjarta hefur dagur runnið upp. Kládía var varla komin út úr leikhúsinu, er himnesk sæla fyllti hjarta hennar. Hún hafði kann- azt við Krist fyrir mönnum — Kristur hannaðist nú við hana fyrir föður sínum. Hún fann það. Hann var hennar, og hún var hans. Hún trúði því, hún fann það. bað voru hamingjusælir dagar. En hamingja hennar átti ekki lengi að vera ótrufluð. Hluttekningin, sem eigin- kona öldungaráðsmannsins hafði sýnt hin- dauðvona kristnu mönnum í hring- leikahúsinu, kall hennar til Damaris, hafði ekki farið fram hjá mönnum. — Dag nokk- Urn komu sveinar borgarstjórans aftur út til sveitaseturs Sulpieiusar. I þetta sinn tóku þeir konu hans með sér. Bænir hans stoðuðu ekkert. Kládía var staðföst við yfirheyrsluna. Hún var dæmd til dauða. Hún lagði höf- uðið á höggstokkinn, lofandi og vegsam- andi Guð fyrir það, að hún hefði verið álit- in verðug píslarvættiskórónunnar. Sól Sulpiciusar var sigin til viðar með dauða Kládíu. Hann hafði unnað henni af öllum kærleika hjarta síns. Nú hafði lífið misst allt gildi sitt í hans augum. Hann varð að fara burt, burt frá staðnum, þar sem heiðnir trúbræður hans höfðu rænt hann dýrmætasta f jársjóði hans. Hann tók göngustafinn í hönd sér með blæðandi hjarta til þess að reyna að finna aftur í fjarlægum löndum þá ró, sem hann hafði verið rændur í Róm. Og hann fann hana, fann hana í trúnni á hinn krossfesta, sem Damaris og Kládía hans höfðu fórnað lífi sínu. Ný sól var upprunnin honum, „réttlætissólin með græðslu undir vængjum sínum“. Nú fékk hann aftur fyrri atorku sína. Hann seldi landareign sína við Róm, gaf eigur sínar fátækum og helgaði sig algjör- lega þjónustu Drottins. — Hann dó sem biskup í Litlu-Asíu. Pandabjörninn í dýragarðinum í Lundúnum var nýlega flutt- ur til dýragarðsins í Moskvu, þar sem átti að koma karl- birni til við hana, en hann leit ekki einu sinni á hana. -— Myndin er tekin af henni, þeg- ar hún kom heim og er að segja frá ferðinni til Moskvu. hEIMILISBLAÐIÐ 237

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.