Heimir - 01.08.1907, Qupperneq 12
6o
HEIMIR
ytri guösdýrkun og lagasetningar, heldur en'hinn innri kjarna
trúarlífsins sjálfs, varö guðshugmynd Gyöinganna svo ólík guðs-
hugmynd Hindúanna. Þeirra guö (Gyöinganna) var altaf fyrir
utan og ofan þenna heim, aldrei í þessum heimi. Hann var
strangur,réttlátur gu8 (samkvæmt þeirra tíma hugmynd um rétt
læti), sem drottnaði yfir sinni þjóð, og hjá þeim sem hæst kom-
ust, yfir þjóðum heimsins; en aldrei guð, lifandi og starfandi í
mannlífinu og í hverri einstaklingssál, eins og vér finnum í hin-
um helgu ritum Hindúanna. Bæöi þessi trúarbrögð þroskuð-
ust, en á ólíkan hátt. I einum er það guð f öllu, sem aðal-
áherzlan er lögð á, í hinum guð yfir öllu.
Tökum hver önnur trúarbrögð, sem vér þekkjum, og al-
staðar er breyting, framþróun að finna. I trúarbrögðum Forn-
Grikkja er hún sýnileg. Eftir því sem heimspekingar grísku
þjóðarinnar fjarlægðust meir og meir goðatrú hennar, eftir þvf
urðu þeir ileiri, sem efuðust um sönnunargildi goðasagnanna,
og hlýddu glaðir á þær kenningar, sem snertu mannlífiö og lífs-
gátur þær, sem hvervetna mættu hinum hugsandi manni. Þeg-
ar svo kristindómurinn breiddist út um alt rómverska ríkiö, þá
féllu síöustu leifar gömlu goöatrúarinnar, sem lengi hafði verið
á fallandi fæti, en mikið af því, sem haföi verið gömlu trúar-
brögöunum andstætt, og tilheyrði öðrum tíma en þau, blandað-
ist saman við hina nýju trú, og varö að kristindómi vesturþjóö-
anna. Þannig mætti vafalaust tilnefna öll trúarbrögö heimsins,
og ef saga þeirra yrði rakin, þá mundi það koma í Ijós, að hvar
sem nokkur andleg framför á sér staö, þar nær sú framför einn-
ig til trúarbragðanna.
Það hefir jafnan verið og er skoðun meiri hluta þeirra
manna, er kristna trú játa, að kristin trú væri undantekning frá
öðrum trúarbrögöum í öllum greinum. Skifting á öllum trúar-
brögöum heimsins niður í kristin og IiciÖin trúarbrögö, sem svo
mikið gildi hefir haft í augum flestra kristinna manna, á ekki
lengur viS, þegar um óhlutdræga rannsókn á öllum trúarbrögð-
um heimsins er aö ræða.
Því hefir veriö trúað og er vatalaust enn trúað af öllum
fjölda fólks í hinum kristnu löndum, að kristindómurinn sé guð-