Heimir - 01.08.1907, Side 20
68
H E I M I R
ORLOG TRÚARINNAR s>®*
o->-j
SAGA EFTIR
JAMES A. FROUDE
I. BRÉF.*
Huntley prestsetur, 4. scpt. 18—
Svo langt er nú síðan, að eg lofaði að skrifa þér, kæri Ár-
þór, að sért þú ekki nú þegar búinn að gleyma mér, þá ertu
víst farinn að álíta, að bezt væri að geta gleymt jafn vanþakk-
látum og vesölum manni,— en nú ætla eg að vera skilvís og
borga með háum vöxtum— því eg álít bréfaskuldir áþekkar öll-
um öðrum skuldum. Borgir þú þær strax, er það lítils metið,
en dragir þú það þangað til skuldeigandi er orðinn úrkula von-
ar, þá kemur borgunin eins og sending frágrði. En kannske
eg gjöri mér of háar vonir, því eg hefi ekkert um að skrifa nema
sjálfan mig, enga viðburði, engar tilgátur, engar skoðanir, eng-
in ævintýri, engin hugboð, ekkert — nema mína eigin tómu til-
veru, sem mér er ekki þýðingarlaust efni, en veit alls ekki, því
eg er að kvarta undan við þig. Sjálfslýsingar eru ekki þreytandi
eða ætti ekki að vera, sé maður hreinskilinn um sjálfan sig,—
en það er svo voða ervitt að vera hreinskilinn! En sleppum
því, eg ætla nú samt að vera það, og þú þekkir mig nógu vel
til þess að sjá í gegnum það,ef eg er að hræsna.
Það er rétt ár síðan við sáumst, og ekkert borið til tíðinda,
nema eg er enn óákveðinn og óþreyjufullur, en jrví skyldi eg
þreyta þig með því? En eg þarf aðstoð þína, og því leita eg til
þín. Ekki svo að skilja, að vandræði mín séu mikil, en eg er
öfugu megin við alla hluti. Föður mínum er mjög ant um, að
eg taki einhverskonar embætti, og dökku gyðjurnar þrjár hafa
boðið mér blíðu sína á víxl, en engri hefi eg getað úthlutað epl-
x) Saga fessi eða frásagnir er eitt mesta meistaraverk Lessa fræga höfundar,
og gengur útá aö lýsa sálarstríði og siðferöisbaráttu manns, er biíinn er
að tapa öllu trausti á trú feðra sinna, en hefir fó la*rt til prests. Sagan
fókk allharðan dóm, eins og viö mátti búast, er hún fyrst kom út, en pyk-
ir nú eitt af listaverkum enskra bókmenta. — Heimir flytur sögu pessa í
smáköflum framvegis. Þýð.