Heimir - 01.08.1907, Blaðsíða 22

Heimir - 01.08.1907, Blaðsíða 22
70 HEIMIR óvandir menn ná oft embættislegnm metum, en þaö er sjaldn- ast vegna ókosta þeirra, heldur mannkosta, meö dngnaöi, fram- sýni og sjálfstjórn."— Svo bætti hann dálitlu viö, sem vakiö hefir mér meiri áhyggjur, því alt hitt er þaö, sem eg hefi marg- sinnis sagt með sjálfum mér. Eg sagöi honum, vegna þess eg ætti ervitt með aö gjöra upp huga minn, að eg áliti, að bezt væri að bíöa svo sem eitt eða tvö ár, og taka tíma til umhugs- unar, áöur en eg afréði nokkuð. „Þú segist vilja veröa að manni", svaraði hann, „en ekki embættismanni, og skal ég ekki ráða fyrir þér í því. En á þín- um aldri og meö þínum hæfilegleikum verður þú að læra, hvað lífið er, ef ekki af mér, þá af h'finu sjálfu. Ef þú heldur aö þú getir vaxið til manndóms meö því aö liggja hér yfir bókum, á sama hátt og líkaminn eldist, eftir því sem árin líða, þá er það sú stærsta hugsýki, er nokkru sinni hefir freistað nokkurs manns til ógæfu. Draumar skapa ekki manndóm, heldur steðjinn og sleggjan. Gakk út í lífið. Þar liggur þín köllun, og hvergi annarstaðar. En þú vilt bíða. Það er líkast barni, er hikar við árbakkann að fara í baðið. Þess lengur sém það stendur skjálfandi, þess hræddara er það við sundið. Að ári liðnu verð'a erviðleikarnir meiri en nú, því þú hefir sjálfur tapáð mætti. Bíð svo enn annað ár, og að tíkindum verðurðu þá genginn inn í hinn síðari barndóm." Hvað á eg að gjöra, Árþór? Þetta er satt, hvert einasta orð. Eg finn það. Eg veit það, og það er sannarlega skamm- arlegt, að fúna niður og verða að engu. En hvað skal gjöra? Sannlega væri það mannúðlegra, að byrja strax við vögguna að ala okkur upp á þeim vegum, er við ættum að ganga, svo að þegar við færum að skríða eða ganga með, þá byrjuðum við strax á stafrofi lögfræðinnar eða læknisíræðinnar, og snúa svo barnaskólanum í réttarsal eða yfirheyrslustofu, og lesa fyrir eða lækna rifnar brúður. Fjarska yrði alt auðvelt þá. Við voguð- um aldrei út af þeirri braut, en snérumst alt af f sama hringinn. En það er voðalegt axarskaft að fóstra okkur upp eins og menn og sleppa svo af okkur hendinni og segja: veljið á milli þessara þriggja vega, er allir liggja ofan á móti. Því niður á við hljót-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.