Heimir - 01.01.1908, Síða 12

Heimir - 01.01.1908, Síða 12
156 HEIMIR gjörir hjóliö?" og snérist til þess að líta eftir hvort nokkuö væri aö. Nei, í þetta sinn fékk hann í þakklæti fyrir fyndnina keyris- ólina ómjúklega utan um hálsinn, um leiö og vagninn rauk inn í þokuna svo gnast í hjólunum. Lúövík Skinna-Bólettuson var ekki í góðu skapi. Honum fanst jólanóttin nú í ár fáskrúöug meö þessari leiöinda þoku. Nei, í heiðríku veöri, í grenjandi frosti var þó eitthvaö aðgjöra, þá var þó hægt aö óhnast á strætinu. Hann hélt áfram aö ráfa, og stalst inn í tvær hálfdimmar búöir fullar af bændum, og náði viö tækifæri, úr annari tveimur tylgiskertum, úr hinni bréfhulstri með rúsínum, og með því aö læðast ábak við breiöa bakiö á einum bóndanum, inni í einu matsöluhúsinu, gat hann klófest fjóra stóra steinsykursmola af undirskál ásamt eldspítna- öskju er lá í gluggakistunni. Lúövík Bólettuson lagði það nefnilega í vanda sinn að kveikja á eldspítum, einni á fætur annari, þegar honum leiddist og hann fann ekkert þarfara aö hafast að; á þann hátt leiö þó tíminn meö dálítilli tilbreytingu, smellum og snarki. En herra trúr! Atti þatf aö verða síöasta vonin hans um jólanætur-skemtun? I fyrra haföi hann þó fengiö graut og flesk að eta meö móöur sinni heima í Öreigahæiinu og aukþesssæta mjöö til drykkjar, og svo sem aukaskemtanir, aö renna sér sem óboðinn gestur í sleöa með þremur „heldri" drengjunum aö deginum til, og aö kveldinu aö gæða gamla sveitar-ómaganum, honum Setler kaðlara, á brennivíns flösku, er hann stal af búö- arborði, svo aö þessi sami virðulegi öldungur kcmst í gegn um öll stig drykkjuskaparins: söng, dans, angurcæiann grát út af minningunni um gamlar unnustur og fífil sinn fegri, ofsafjör æskunnar, svo aö hann ætlaöi að berja samfélaga sína í Öreiga- hælinu og fullvissaöi þá um að hann geröi þaö af einskærri ást til þeirra, drafandi málróm og aflleysi í fótunum, og aö síöustu algjört dauðadá.— En í ár! Myrkrið skall á, meðan drengurinn rátaöi um á þessum mishepnaöa leiðangri sínum,og áöur en hann varði var kolniöa myrkur komið úti á strætinu. Innan allra glugga sáust ljós, surnstaðar var hljóðfærasláttur, sumstaðar söngur, annar-

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.