Heimir - 01.01.1911, Síða 1
VII. árganffur WlNNIPEG, 1911- 5. blaO-
Úr ýmsum áttum.
Þann 23 desember síðastliöinn samþykti þingið á Spini
með mjög miklum tneiri hluta atkvæða lagafrumvarp, sem bami-
ar myndun nýrra klaustra eða kyrkjustofnana, þar til samning-
arnir á milli ríkisins og kyrkjustjórnarinnar frá 1851 hafa verið
endurskoðaðir. Forsætisráðherran, senor Canalejas, barðist
fyrir frumvarpinu, og hafði jafnvel látið á sér skilja, að ei það
næði ekki samþykt þingsins mundi hann segja af sér. A móti
því börðust hinir íhaldsömustu af kyrkjuflokknum, er voru
eggjaðir til þess af páfanum. Fult trúarfrelsi, eins fliótt og því
verður við komið, virðist vera stefna núverandi stjórnar á Spáni.
Síðan modernista hreyfingin svo nefnda fór að gera vart við
sig innan kaþólsku kyrkjunnar, hefir páfinn gert sitt ýtrasta til
að uppræta hana. Hann hefir krafist aföllum kaþólskum prest-
um, að þeir með eiði neiti kenningum modernistanna. Margir
kaþólskir klerkar á Frakklandi, sem hafa hneigst að Modernista
stefnunni, hafa meö undanðrögðum og hártogunum, sem kaþól-
ska kyrkjan hefir jafnan notað, tjáð sig kyrkjunni fylgjandi í öllu
og öllum nýjum villukenningum mótfallna. Einn hinn nafn-
kendasti modernisti á Frakklandi, Abbé Houtin, hefir nýlega