Heimir - 01.06.1911, Blaðsíða 9
HEIMIR
225
máliö væri tekiö til uinræöu. Tillagan var studd af Jóh.
Sigurössyni og samþykt.
Um máliö töluöu M. J. Skaptason, G. Árnason, Jóh.
Sigurösson, H. Magnússon og G. J. Goodmundsson. Tjáöu þeir
allir sig málinu hlynta og lögöu áherzlu á, aö æskilegt væri, aö
málinu yröi hrundiö í framkvæmd.
G. Árnason lagöi til aö málið sé falið fimm manna nefnd
til meðferöar og framkvæmdar til næsta þings. G. P. Magnússon
studdi tillöguna.
Framsögumaöur málsins kvaö þaö ekki nógu vel undirbúiö
fyrir þesskonar nefnd. Aörir tóku einnig í sama streng, ogtóku þeir
G. Árnason og G. P. Magnússon tillögu sína til baka. Séra R.
Pétursson lagöi til, aö þriggja manna nefnd væri skipuö til aö
íhuga máliö og gefa skýrslu á sunnudagsfundi e.h. Tillagan var
studd af B. B. Olson og samþykt. Forseti skipaði þessa inenn
í nefndina: Rögnv. Pétursson, Jóh. Sigurðsson og M. J. Skapta-
son.
Stephan Thorson las upp eftirfarandi ályktun, sein var studd
af G. P. Magnússyni og samþykt f einu hljóöi, meö því aö menn
risu frá sætum sínum.
“Með því aö á þessum degi eru nú liöin hundrað ár frá
fæöingu vors ágæta stjórnmálaskörungs, fræðiinanns og fööur-
landsvinar Jóns alþingisforseta Sigurðssonar, á Rafnseyri í
Isafjaröar-prófastsdæmi á Islandi, og aö þessi dagur er nú hald-
inn almennur þjóöininningar og hátíöis dagur heiinaá fööurlandi
voru og víöar þar sem Islendingar búa, þá finnum vér ljúfa
köllun hjá oss íslenzkir Unítarar í Vesturheimi, á þingi saman-
komnii aö Gimli, Man. að taka undir meö Jieim hátíöahöldum
og samfagna meö bræörum vorum og systrum hvar í heimi sem
þeir búa, yfir því, aö þjóö vor átti þvf láni að fagna aö eiga
slíkan ágætis son, og að skuldbinda oss til aö geyma minningu
forsetans fræga helga í hugum vorum hér á útlendum staö,
meöan æfin og lífiö endist. ”
Skýrslur frá þingnefndum voru þá teknar fyrir.
Utgáfunefndin lagði fram eftir fylgjandi skýrslu: