Muninn - 01.03.1978, Blaðsíða 12
HUGINSHARMUR
Hérna þér birtist bragur
um bölvaðast Hugins ráð.
Fordæmdur var sá dagur
djöfullinn hafð' 'ann þráð
er embættin komust í
Krlingur, Siggi, Arnar,
Ingólfur meyjar barnar.
ÞÓroddsson er í því.
Formanninn fífl má telja
fullan með kjaftaskak.
Orðaflaums árnar belja
upp fyrir skólans þak.
Vara sig margur má.
Enginn fær undan bjargast
aftur og fram er þvargast
málfundum Arnar á.
Sigurður æ með svikum
sjóðunum grynnir á.
VÍst^fyrir mörgum vikum
verja við áttum þá.
Sem geit hann um fé vort gekk.
Bjórinn og brennivínið
sem brúkaði lasta svínið,
galt hann með gúmmítékk.
Hagsmunaráði hefur
í hafvillur Gólfur stýrt.
Grið honum engin gefur
guðslambakynið rýrt.
Dregst hann í dufl og vín.
í mannkynsins flór er frægur
við fjandann er ætíð þægur
er leidd' 'ann í samtök sín.
Ritstjórans ræfildómur
rómaður mjög er hér.
Margfrægur lasta lómur
latur og hyskinn er.
Dæmd er hans svarta sál.
VÍst er að fá mun fjandinn,
er fer burt úr skrokknum andinn,
mat sinn í næstu mál.
Ritarans rifnu bækur
ráðið nú enginn fær.
Alkóhóls allstór lækur
útbíað hefur þær.
Undrast það ekki neinn.
LÍtt hann í lyndi glaður
ljótur og heimskur maður
drukkinn er dag hvern einn.
Erlingur Sigtryggsson.
6-T ' 76- ' 77 . (frh).
Magnhildur Björnsdóttir - bóndakona fyrir austan.
Magnús Loftsson - er læknisfræðinemi í HÍ.
Margrét ólafsdóttir - vinnur í banka á Akureyri.
Sigríður Kristín Bjarnadóttir - húsmóðir á Akureyri.
Sigurósk E. Jónsdóttir - kennir í Barnaskóla Akureyrar.
Smári Steingrímsson - huldumaður.
Sveinn Geir Einarsson - læknisfræðinemi í HÍ.
Þórunn Hálfdánardóttir - kennir á Neskaupsstað.
12