Muninn - 01.03.1978, Blaðsíða 15
lengri tíma. Þetta bitnaði nokkuó á aðsókninni sem þó var yfir-
leitt nokkuð góð.
Á fjárhagsáætlun skólafélagsins var gert ráð fyrir 300.000.oo
króna framlagi til Listaviku en beinn kostnaður reyndist þó aðeins
vera um 60.000.oo krónur. Er þá kostnaður hinna ýmsu félaga ótal-
inn, en hann reyndist vera um 140.000.oo krónur. Af þeim kostnaði
reyndist kostnaður L.M.A. vera 90.000.oo krónur.
Við viljum að lokum þakka hinum fjölmörgu aðilum sem stuðluðu
að því að listavika varð að veruleika. Að öllum ólöstuðum viljum
við þó þakka sérstaklega:
Tryggva Gíslasyni, skólameistara,
TÓmasi Jackman, tónlistarkennara,
Herði Torfasyni, leikstjóra,
forstöðumönnum Borgarbíós, Samkomu-
hússins og Tónlistarskólans.
Einnig þökkum við gott samstarf við núverandi stjórn Hugins
undir formennsku Arnars Björnssonar.
ENDANLEG DAGSKRÁ LISTAVIKU MA 6.-12. MARS.
6. mars. Samkomuhús. Frumsýning leikritsins Hlaupvídd sex eftir
Sigurð Pálsson undir leikstjórn Harðar•Torfasonar. Tón-
list eftir Hafþór Helgason.
7. mars. Setustofa Heimavistar MA. SÍgild tónlist. TÓnleikar
nemenda úr MA.
Samkomuhús. Hlaupvídd sex. 2. sýning.
8. mars. Borgarbíó. Kvikmyndasýning. Kona undir áhrifum
Samkomuhús. Hlaupvídd sex. 3. sýning.
Möðruvallakjallari. Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur
kynnir verk færeyska skáldsins William Heinesen.
9. mars. Samkomuhús. Kvikmyndasýning. Blái engillinn
Samkomuhús. Hlaupvídd sex. 4. sýning.
Salur MA. Tónleikar. Manuela Wiesler flautuleikari.
10. mars. Möðruvallakjallari. MA-kvöld. Listamenn skólans
koma fram.
11. mars. Borgarbíó. Kvikmyndasýning. Barry Lyndon.
Samkomuhús. Hlaupvídd sex. 5. sýning.
Frh. bls. 35.
15