Kirkjuritið - 01.05.1935, Qupperneq 21
Kirkjufitið.
Siðaskoðun nútímans.
205
á öllum sviðum. Og hún getur heldur ekki litið á lífið
öðru visi en sem dægurtilveru — getur ekki skoðað það
frá sjónarmiði eilífðarinnar, og þar af leiðandi ekki
sózt eftir eilífum verðmætum.
En að hvaða gagni kæmi það manninum, þótt hann
eignaðist allan heiminn, ef hann fyrirgjörði sálu sinni?
Trúlaus æska vex eins og hol strá — ávaxtalaus.
Sigurður Breiðfjörð kvað reyndar um oss prestana:
Prestar hinum heimi frá
hulda dóma segja,
skyldi þeim ekki bregða í brá
blessuðum, nær þeir deyja.
Ég skal ekki neita því, að oss muni koma margt öðru
vísi fyrir sjónir annars heims en vér ætluðum.
En hvað mun þá um þá, sem ekki vildu trúa á neinn
Guð né æðri veröld. Ætli þeim geti ekkert brugðið í
brún?
Handan við hafið er meginlandið og hinar álfurnar,
livort sem barnið trúir þvi eða ekki.
Og annar heimur er alveg eins til fyrir því, sem skáld
•fiskunnar segja.
Veruleikinn breytist ekki, þótt einhverjir vilji ekki
við hann kannast.
Guðs vegir eru sanna hamingjuleiðin, þótt einhverjir
fyrirlíti þá og hafni þeim.
Það eru þeir, sem liggja upp á tindana.
Gunnar Árnason
frá Skútustöðum.