Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 24

Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 24
208 Hvað getum við kennarar gert? Kirkjuritið Hin árlega starfsskýrsla prestanna á fyllilega að nægja lil þess, að sýna ástandið innan kirkjunnar, að svo miklu leyti, sem hægt er að sýna slíkt með tölum. Og það er á þeirri skýrslu, en elcki hinni úreltu messufallaskrá, sem verður að byggja, ef meta á starfsemi og gagn islenzkr- ar kirkju með nokkurri sanngirni. Að dæma liana eftir hinni úreltu og villandi messufallaskýrslu getur ekki orð- ið annað en. ósanngjarn sleggjudómur. Sveinn Víkingur. HVAÐ GETUM VIÐ KENNARAR GERT? Hvað gelum við kennarar gert? Auðvitað fyrst og fremst glætt vel þennan neista, sem falinn er í hverri barnssál, meðvitundina um Guð. Ég held, að fjölmargir kennarar geri það; því miður ekki allir. Hér kenni ég mest af kristnum fræðum sjálfur — byrja ög enda. Og mér fellur það hverju árinu hetur. Þeir tí'mar eru ekki síður fyrir mig en hörnin. Ég læl þá ætíð hyrja með því, að við syngjum öll eitt eða tvö falleg vers, síðan kemur eitt barnið l’ram fyrir hópinn og les „Éaðir vor“ hátt, en öll standa drúpandi liöfði á meðan. Og þetta gera þau til skiftis. Síðan er svo sungið á eftir. Þarna er þegar fenginn sá bezti undirhúningur undir tímann, sem hægt er. Hugirnir opnir og móttækilegir, og auðvelt að koma þeim til að vikna. Og sá hátíðablær, sem ríkir yfir surii- um þessum tímum, þegar sem hezt tekst, er mér einnig sönn guðsþjónusta. Mér hefir einnig orðið til ánægju, hve prcsturinn lætur vel yfir að lala við þessi börn á vorin, er hann býr þau undir fermingu. (Úr bréti frá skólastjóra).

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.