Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 31
Kirkjuriliíí.
Erlendar bækur.
215
person. III. Sjelesorgen. — Kostar rit þetta alls n. kr. 22.50 ób.
en í skinnbandi n. kr. 28. — „Ordets tjenesle“ er prédikunar-
fræði, eins og nafniS gefur til kynna. Eru þar a'ð vísu ekki gefn-
ar leiðbeiningar um hinn scrstaka undirbúning presta undir
hverja einstaka prédikun, heldur talað um prédikunarstarfið al
ment, bœði sem lið i guðsþjónustum safnaðanna og einnig ut-
an þeirra.
Sven Ulsaker: „Smástykker. Av en prests dagboksopteffnelser".
- 90 bls. —
Johannes Knutzen: „Innenfor". — 99 bls. —
Ivar Welle: „Oxford-Gruppene. .4i; Gud eller av mennesker?“
— 48 bls. —
Allar gefnar út i Oslo 1934 á Luthersstiftelsens forlag. —
Allar eru bækur þessar mjög læsilegar. Tvær hinar fyrstu
flytja stuttar hugleiðingar um ýmisleg kristileg efni, en hin sið-
astnefnda er rituð þeim til leiðbeiningar, er kynst hafa eða
kynnasl vilja Oxford-hreyfingunni nýju. Hefir sú trúarhreyfing,
eins og kunnugt er, haft allvíðtæk áhrif í Noregi og á þar áhuga-
sama áhangendur.
Ludviff Daae Zwilgmeyer: „Tidehverv. Salmer og religiöse
dikte". — 79 bls. —
Johs. Gausdal: „Heilage Kvad, mest til den tridje tekstrekkja
iit Den Norske Iíyrkja. Med eit fyreord av biskop dr. Bernt
Stöylen". 106 bls. Báðar gefnar út i Oslo 1934 á Luther-
stiftelsens forlag.
Þeir, sem vilja kynna sér trúarlega Ijóðagjörð Norðmanna,
ættu að eignast þessar bækur, sem vera munu gott sýnishorn
af nútima kveðskap þeirra andlegum. Sérstaklega er siðarnefnda
bókin eftirtektarverð fyrir það, að í henni birtast i þýðingu úr-
valssálmar enskir, t. d. „Onxvard Christian soldiers“, „Art thou
weary, art thou languid, o. fl. S. P. S.
Bækur Oxfordhreyfingarinnar.
Um þessa merkilegu trúarhreyfingu, um eðli hennar, vöxt
og helztu brautryðjendur hefir mikið verið ritað á siðustu 3—
4 árum, einkum á ensku, en fált af ];ví hcfir birzt í íslenzku,
og hreyfingin hér á landi þvi lítið kunn, jafnvel meðal þeirra,
sem áhuga hafa fyrir trúmálum.
En enginn vafi er á því, að margt má af þessari merkilegu
hreyfingu læra, bæði hvað snertir trúarlíf einstaklinganna, og
í sambandi við starfsémi kirkju vorrar.