Kirkjuritið - 01.05.1935, Síða 32
216
Erlendar bækur.
Kirkjuritið.
Tilgangur þessarar greinar er sá, aS vekja athyglí á nokkr-
um enskuin bókum og ritum, sem lýsa ýmsum þáttum í starti
hreyfingarinnar, ef það mætti verða til þess að vekja áhuga
einhverra á því, að kynna sér hana nánar, og þann boðskap,
sem hún flytur, og fylgjast með starfinu.
„Life changcrs“ (2.6 sh.) eftir H. Begbie er eitt af fyrstu rit-
um hreyfingarinnar, sem almenna athygli vakti. Bókin er í 8
köflum og segir þar rækilega frá upphafi hreyfingarinnar, og
brautryðjanda hennar, Frank Buchman, frá æfi hans og sinna-
skiftum, frá persónu lians og kristilegum áhrifum á ýmsa menn.
er urðu á vegi hans, og hvernig þau urðu til þess að gjörbreyta
lifi þeirra. (Bókin er til í danskri þýð. Kr. 2.50).
„For Sinners only“ (5 sh.) eftir A. .1. Russell. Bók þessi er
sennilega sú af bókum hreyfingarinnar, sem mesta athygli hef-
ir vakið. Hún kom út 1932 og var þá meðal þeirra bóka, sem
mest voru lesnar á Englandi og hefir siðan komið út í fjöl-
mörgum útgáfum.
Höf. er enskur blaðamaður og segir hann frá því, hvernig
hann kyntist lireyfingunni og hvernig hún dró hann til sin
með ómótstæðilegu afli. Segir hann frá viðkynningu sinni við
ýmsa helztu leiðtoga hreyfingarinnar, starfi hennar og álirif-
um. Þá segir hann frá ferð Oxfordflokksins til Bandaríkjanna,
en í þeirri ferð tók hann sjálfur þátt. Bókin er í 23 köflum og
eru margir þeirra framúrskarandi Iærdómsríkir og auk þess
skemtilega ritaðir. Engan mun iðra þess að lesa þessa bók.
(Fæst i danskri þýð.).
Conversion of thc church (2,6 sh.) eftir Sam M. Shoemaker.
Höf er prestur við hina merku Calvary-Church í New York.
injög þektur prestur, og kunnur úr starfi Oxfordhreyfingarinn-
ar frá upphafi. í bókinni segir hann frá reynslu sinni í söfn-
uði sínum i stórborginni New York, og bendir á galla safnaðar-
lífsins og hvaða áhrif meginreglur Oxfordhreyfingarinnar geta
haft á starfsemi kristinna safnaða, til þess að skapa þróttmikið
kristilegt starf og kirkjulíf.
Bókin er i 6 köflum, og þó að höf. hafi aðallega fyrir augum
kristilegt safnaðarlíf stórborganna, þá hafa athuganir hans og
bendingar svo almennt gildi, að margt má af þeim læra í
kirkjulegu starfi, hvar sem er.
Ennfremur má nefna bækurnar:
What is the Oxford Group? (2,6 sh.).
Twice horn ministers eftir Sam. Shoemaker.