Kirkjuritið - 01.05.1935, Page 33
Kirkjuritið.
Innlendar fréttir.
217
Whij I believe in the Oxford Gronp. J. Winslow.
Inspired children eftir Oliver Jones (4 sh.).
Children of the second birth eftir S. M. Shoemaker (6 sh.).
Tlie Guidance of God eftir Elenore Forde (3 d.).
Sharing eftir J. D. Thorutoii-Duesbury (2 d.).
The Quiet time eftir H. J. Rose (1 d.).
Ennfremur má nefna hina merkilegu skýrslu um ársfund
hreyfingarinnar í Oxford í júní— júlí s. 1. sumar, The Oxford
Group International House Party 1934. Þennan fund sóttu menn
frá um 40 þjóðum, til þess að kynnast starfi hreyfingarinnar.
Áhril'um þeim, er þeir urðu fyrir á fundinum, er lýst i stuttum
ritgerðurn í riti þessu.
Þeim, sem kynnu að viija kynna sér starf hreyfingarinnar, eins
og það gengur dag frá degi, má benda á mánaðarrit hennar
The Groups. Þar birtast margskonar greinar og fréttir af starf-
inu. Ennl’remur birtir enska vikublaðið British Weekli;, fréttir
af starfi hreyfingarinnar, og annað nierkilegt er það snertir.
Bækur þær og rit, sem hér hefir verið getið um, fást hjá bók-
sölum eða frá miðstöð hreyfingarinnar „Oxford Group Move-
ment“ 51 Gower Street, London W. C. I.
Óskar J. Þorláksson.
INNLENDAR FRÉTTIR.
Hafnarfjarðarkirkja 20 ára.
Hafnarfjarðarkirkja varð 20 ára í desember s. 1. Mintist söfn-
uðurinn þessara tímamóta í sögu kirkju sinnar með hátíðahöld-
ur, er fram fóru fyrsta sunnudag í aðventu, 2. des. Hálíða-
höldin hófust með guðsþjónustu í kirkjunni kl. 5 e. h. Sóknar-
presturinn, séra Garðar Þorsteinsson, flutti ræðu og þjónaði
fyrir altari. Var kirkjan þéttskipuð. Um kvöldið var samsæli
haldið í samkomuhúsi Góðtemplara, og sótti það hálft annað
hundrað safnaðarmeðlima. Boðsgestir voru biskup landsins, dr.
tlieol. Jón Helgason og frú, séra Bjarni Jónsson prófastur og frú
og frú Líney Sigurjónsdóttir, ekkja séra Árna prófasts Björnssonar,
er var fyrsti starfandi prestur við lcirkjuna. Voru margar ræður