Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1935, Page 35

Kirkjuritið - 01.05.1935, Page 35
Kirk.juriliíí. Innlendar fréilir. 21!) liann slarl' sill prýðilega af hendi. (Uann andaðisl 14. des. IÍI14. Var lík hans borið i kirkjuna lil greftrunar 23. des., og var |>að hin fyrsta helgiathöfn, seni i kirkjunni fór fram, að vígsluathöfn- inni einni undanskilinni). Að Hafnarfjarðarkirkja varð svo vandað guðshús, sem raun varð á, var hæði að þakka almenn- um áliuga og rausnarlegum gjöfum safnaðarmanna og dugnaði og fjárhagslegum stuðningi forgöngumanna byggingarinnar, en j>að voru kaupmennirnir August Flygenring og Einar Þorgils- son og Sigurgeir Gíslason verkstjóri. Kirkjan eignaðist pipuorgel vandað og gott þegar í upphafi. Var j)að upphaflega stigið, en síðar knúð áfram mcð rafmagni, eftir að kirkjan var raflýst. Að svo vel lókst til með kaup á hljóðfærinu og það á þeim tima, er slik hljóðfæri voru ntjög l'átíð hérlendis, var fyrst og frenist að ]>akka Friðriki Bjarna- syni, er verið hefir organisti kirkjunnar frá fyrstu tið og er enn. Hefir ósérplægni og dugnaður þessa ágæta hæfileikamanns verið sönglífi kirkjunnar ómetanteg stoð, enda honiim tekist að halda uppi mjög góðum söhgflokki og verið gæddur hæfi- leikum og kunnáttu til að |)jálfa hann og bæta. Auk ]>ess hefir Friðrik sainíð hálíðasongva nú á siðari árum, senl flultir hafa verið í kirkjunni og unnið hafa hylli, og á þann hátl stuðlað að eliingu kirkjulífsins. Arið 1930 var Kvenfélag þjóðkirkjusafnaðarins stofnað, og hefir j)að starfað mjög ötullega að ]>vi að prýða kirkjuna á ýmsan liáll. Hefir það verið sóknarnefndinni til mikils sluðn- ings i slarl'i heiinar, og átt sinn þátt í að gjöra ýmsar þær endurbætur á kirkjunni mögulegar, sem annars hefðu orðið söfnuðinuin ofurefli. Nú síðast færði formaður kvenfélagsins kirkjunni kr. 1200.00 að gjöf frá kvenfélaginu, i tilefni af 20 ára afmælinu, og skyldi nokkrum hluta (kr. 800,44) varið til kaupa á nýjum altarisgripum. Stjórn kvenfélagsins skipa Irú •lóhanna Símonardóttir (form.), frú Guðfinna Sigurðardóltir (ritari) og frú Ólafia Hallgrímsdöttír (gjaldkeri), en sóknar- nefndina skipa Steingrínmr Torfason kaupm. (form.), Ólafur II. .lónsson kaupm. (ritari), Magnús Guðjónsson hílstjóri (gjald- keri), Gisli Jónsson l'iskimatsm. og Guðm. .lónasson bæjar- fulltrúi. En safnaðarfulltrúi er Sigurgeir Gíslason gjaldkeri. í Hafnarfirði hefir alla tið verið almennur áhugi fyrir mál- efnum kirkjunnar og kirkjuséikn mjög góð, og er það ekki sizt ánægjuefni á þessum liinamótum i sögu hinnar ungu Hafnar- fjarðarkirkju. (i. l>.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.