Kirkjuritið - 01.05.1935, Blaðsíða 36
220
Innlendar fréttir.
Kirkjuritið.
Frumvarp til laga
um afhending Dómkirkjunnar til safnaðarins i Reykjavik og
fjölgun sókna og presta i Reykjavilc og öðrum kaupstöðum.
1. gr. Dómkirkjan i Reykjavík skal afhent söfnuSinum til
eignar og afnota með þessum skilyröum: Ríkið greiði söfnuð-
inum 300 — þrjú hundruð — þúsund krónur til nýrra kirkju-
bygginga, er greiðist á 30 árum með 10 þúsund krónum á ári.
Ríkiö skal hafa eftir sem áður aðgang að Dómkirkjunni, þegar
þörf krefur, gegn gjaldi, er síðar verður um samið.
2. gr. Eftir afhendingu Dómkirkjunnar i hendur safnaðar-
ins, skal skifta söfnuðinum í 6 sóknir. Kirkjuráð ákveður tak-
mörk sóknanna eftir tillögum sóknarnefndar núverandi safnaðar.
3. gr. Kirkjubyggingar í hinum nýju sóknum annast og kost-
ar söfnuður hverrar sóknar, þó þannig, að hver sókn fær auk
kirkjugjalds frá ársbyrjun þess árs, er sóknarskifting er löglega
ákveðin, hlutfalslegan part af fé því, er ríkið leggur árlega til
kirkjubygginga samkvæmt 1. gr. Ákveður Iíirkjuráð hvernig
skifta skuli.
4. gr. Sóknir þær, er nefndar eru í 2. gr., skulu vera 4
prestaköll, og skulu vera í þeim svo margir prestar, að því
svari, að 1 prestur sé fyrir hverja 5000 sóknarmanna. En ef
fólkinu fjölgar, skal prestum fjölga í hlutfalli við fólksfjölda,
þannig, að á hvern prest komi sem næst fimm þúsund manns.
5. gr. Reykjavikurbær skal leggja ókeypis lóð undir fyrir-
hugaðar kirkjur í hinum nýju sóknum, einnig undir prestsset-
urshús. Skulu staðirnir valdir með samþykki Kirkjuráðs.
6. gr. Heimilt skal mönnum eftir skiftingu Reykjavíkur-
prestakalls i 6 sóknir að taka prestsþjónustu hjá öðrum presti
en sóknarpresti sinum innan takmarka hins núverandi presta-
kalls, án þess að fara þurfi eftir lögum nr. 9, 2. maí 1882, um
leysing sóknarbands.
7. gr. Ákvæði 4. gr. i lögum þessum um, að á einn sóknar-
prest skuli ekki koma fleiri en 5000 manns, skal einnig gilda
um aðra kaupstaði landsins, og skal fjölga þar prestum eftir
þessum reglum.
8. gr. Ákvæði 2.—6. gr. koma til framkvæmda við næstu
prestaskifti i Reykjavíkurprestakalli, eða þegar núverandi prest-
ar Dómkirkjusafnaðarins samþykkja breytinguna.
9. gr. Lög þessi öðlast gildi ....