Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1935, Qupperneq 39

Kirkjuritið - 01.05.1935, Qupperneq 39
Kirkjuritið. ERLENDAR FRÉTTIR. Itússneska kirkjan. Margai' úfagrar og hryililegar sögur hafa á uiuianförnum árum borist af ofsóknum í Hússlandi á hendur kirkju og kenni- lýð. Vmsar af þeim sögum kunna að visu að vera nokkuð orð- um auknar, en þvi verður þó ekki neitað, að klerkar og kirkja hafa þar orðið fyrir svo harðvítugum og ósanngjörnum árás- um af hálfu Sovjetstjórnarinnar, að ekki getur drengilegt talist. Að visu er trúarbragðafrelsi viðurltent í liússlandi að nafii- inu til, en heldur ekki meira. Allar kirlcjueignir hefir rikið söls- að undir sig, rfið til grunna mörg kirkjulnis, en breytt öðrum í samkomusaii, kvikmyndahús, bílskúra o. s. frv. Þœr kirkjur, sem söfnuðirnir enn fá að hafa til afnota eru skattlagðar hterra miklu en önnur hús, til þess að gera söfnuðunum sem erfiðasl fyrir. Klerkar eru með lögum frá 8. april 192!) sviftir rétti lil bú- setu á þeim eignum, sem ríkið á, og vilji einhver skjóta skjóls- húsi yfir þá, verður að greiða fyrir það sérslakt gjald eða skatt. Matvæli og aðrar nausynjar verða rússnesku prestarnir að kaupa við þrefall hærra verði en aðrir þegnar ríkisins. Krist- indómsfræðsla barna er bönnuð í öllum skólum. lín i heima- húsum má að vísu fræða börn um Irúleg efni, en þó inega ekki vera þar saman komin fleiri en 3 börn í senn. Um börn presta gilda sérstök ákvæði. Þau eru útilokuð frá hinum almennu barnaskólum, og vinnumiðlunarskrifstofum ríkisins er bannað að veita þeim nokkra atvinnu. í tilskipun frá 15. mai 1932 er meðal annars þelta lekið frain: Bönnuð útgáfa atlra bóka, blaða eða tímarita, er fjalli um and- leg mál. Ákveðið, að á árunum 1934 35 skuli öllum klerkum vísað úr landi, ef þeir ekki hala lagt niður störf sín meðal safnaðanna. Á árunum 1935 -36 skulu sérstakri nefnd fengin í hendur öll umráð yfir kirkjum, samkunduhúsum og bænahús- um, og skal nefndin annast um, að þessum byggingum verði breytl i kvikmyndahús, fundasali eða annað ])essháttar. „Eftir 1. maí 1937“, segir að lokum í tilskipun þessari, „skal ekkert guðshús framar til vera í Sovjetríkinu, og er þarmeð Guð út- lægur gjör úr Rússlandi“.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.