Kirkjuritið - 01.04.1937, Síða 16

Kirkjuritið - 01.04.1937, Síða 16
Holger Mosbech: Kirkjuritiö. 134 vera bézta gríska, sem til væri, því að auðvilað hefði lleilagur andi getað talað og ritað málið alveg rétt. Og menn töldu það víst — svo að annað dæmi sé nefnt, að sköpunarsagan í Biblíunni væri vísindalega rétt og' nákvæm frásögn um það, hvernig heimurinn hefði orðið lil fyrir um 6000 árum (sbr. almanök alt fram á sið- ustu ár). En frá ofanverðri 18. öld og til vorra daga hefir Biblíu- rannsóknum fleygt mjög fram. Ilefir þá komið i ljós, að ýmsar náttúrufræðilegar og sögulegar skýringar í Biblí- unni geta ekki verið réttar, þar sem þær brjóta í bág við vísindalega sannaðar staðreyndir, mótsagnir koma þar fram og ósambljóðan, og sumstaðar er ekki unt að að finna merkingu í einstaka málsgreinum. Ekkert slíkt gat verið frá Guði, það hlaut að stafa frá mömnmum, sem skrifað höfðu. Allir fræðimenn munu nú vera sam- rnála um það, að Heilagur andi sé ekki beinlínis höfund- ur að hverri setningu eða hverju orði í Biblíunni. M. ö. o. gáinla bókstafsinnblásturskenningin er fallin. í hennar stað er komin kenningin um persónuinnblástur, þ. e. a. s. andi Guðs hefir veitt þeim mönnum, er rituðu Biblíuna, sérstaka leiðsögu, styrk og trúarreynslu, svo að það, sem þeir skrifuðu, hefir orðið oss huggun og leiðarljós. Slik skoðun á innblæstrinum gelur að mínum dómi fyllilega samrýmst nútímaskoðuninni á Biblíunni — svo framar- lega sem menn draga af henni réltar ályktanir. Af per- sónuinnblæstrinum ieiðir sem sé það, að mannsins, sem skrifaði, gætir einnig, en ekki Guðs eins. Yandamálið mikla verður þá að greiða úr því, hvað sé beinlínis frá Guði í Biblíunni og livað frá mannlegum og ófullkomn- um rithöfundum. En við því verður ekki gefið svar í eitl skifti fyrir öll. Menn eru að vísu vanir því að segja, að það, er varðar trú og siðgæði, skuli telja innblásið og óskeikult, en hitt, er lúti að náttúruvísindum, sögu og' öðrum vísindagreinum, frá mönnum komið og háð mannlegum ófullkomleikum og aldarhælti. En jafnvel

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.