Kirkjuritið - 01.04.1937, Side 38

Kirkjuritið - 01.04.1937, Side 38
156 Erlendar fréttir. Kirkjuritið. fordhreyfingarinnar, meðan um 18 þúsundir biðu fyrir utan án þess að komast inn. Tíu mínútum áður en þingið var sett, var ég staddur í litlu blaðamannaherbergi i Albert Hall. Frank Buchman var þar líka, og var að tala við mjög gamlan Hjálpræðishersliðs- foringja, sem sagði við hann: — „Guð blessi þig, ungi maður! Þú ert bezta von Evrópu!“ — Ég mun aldrei gleyma bæninni, sem Buchman bað fyrir þingi sínu og starfi, með hárri og næstum gjallandi rödd, meðan öll göng voru alskipuð fulltrúum frá þrjátiu og einni þjóð, sem nokkurum mínútum seinna skyldu flytja vitnisburði sina um nýtt líf fram fyrir óþreyjufullum áheyrendum. Þýzkur heim- spekingur fékk einu sinni að sjá Napóleon og sagði frá því, að honum hefði fundist hann sjá alheimsandann á hestbaki. Ég fékk að sjá nokkuð annað og meira — mann fullan af heilögum anda Guðs. Soffíukirkjan í Konstantínópel. Þes'si kirkja var bygð á dögum Justiníans keisara, og enginn hlutur til liennar sparaður. Var hornsteinninn lagður 532, en kirkjan vígð á jólum 538. Vfirsmiðirnir voru frændur tveir, An- themius og Isidorus, og er talið, að um 10 þúsund manns hafi lagt hönd að kirkjusmíðinni. Marmari, rauðgrýti og alabastur og önnur dýrmæt byggingarefni voru dregin að víða um róm- verska ríkið, og er jafnvel talið, að fengnar hafi verið súlur úr heiðnum liofum, m. a. úr Díönuhofinu í Efesus. Þrjátíu og sex smálestir af gulli fóru í það að gylla hvolfþök, hvelfingar og boga og ýmsar helgar tiglamyndir og dýrlinga í veggjum og öltur- um. Er sagt, að sjálfum keisaranum hafi fundist svo mikið til um þessa veglegu byggingu sina, að hann liafi hrópað, er henni var lokið: „Nú hefi ég yfirstigið þig, Salómon". Tuttugu árum síðar hrundi meginhvelfingin í miklum jarð- skjálfta. Var hún endurreist og svo ramlega, að síðan hefir hún hvergi haggast, á hverju sem hefir gengið. Þegar Tyrkir unnu Miklagarð 1453, létu þeir kirkjuna standa óbreytta að öðru leyti en því, að þeir gerðu úr henni tyrkneskt bænahús, settu á hana hálfmánann í stað krossins, fjóra bænaturna (min- arettur) og eyðilögðu eða huldu mest af hinum kristnu tigla- myndum. Nú hefir Mustapha Kemal, forseti tyrkneska lýðveldisins, ákveðið, að þessu fornfræga húsi skuli vera breytt í listasafn og öllum þjóðum opnaður aðgangur að ]jví. Jafnframt hefir hann falið amerískum manni, safnhússtjóra þar eystra, að nafni Thomas Whittemore, að láta vinna að því, að afhjúpa hinar fornu dýrlingamyndir og endurskapa kirkjuna til síns upp-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.