Jólakötturinn - 24.12.1910, Side 2
Stutt leiðMning fyrir þá sem
Yilja spyrja spil.
Hjarta ás boðar heita ást, hreinskilni.
Hjarta tveir gifting, farsælt hjónaband.
Hjarta þrír boðar; að sveinbarn mun fæðast
innan eins árs, (og vonir rætast.)
Hjartafjórir að tvfburar munu fæðast.
Hjarta fímm sá sem dregur þetta spil á óvin
sjer nátengdann sem reynir að vinna tjón.
Hjarta sex, þetta spil boðar gleði og hamingju.
Hjarta sjö boðar góðar frjettir, sendibrjef.
Hjartaátta, sá sem spyr mun bráðlega fara á
skemtun með mörgu fólki, og hafa ánægju af því.
Hjarta nía boðar ríkulega gjöf.
Hjarta tía er eitt hið besta spil af þessari
sort, hún boðar bæði mikla auðlegð og góðagift-
ingu og margt fleira gott.
Hjarta gosi boðar ungann og fríðann biðil
ef stúlkan er ógift annars peninga innan 2 nátta.
Hjarta drotning. Heit og einlæg ást frá
fríðri stúlku.
Hjartakóngur. Háttstandandi maður er þjer
velviljaður, eg mun bæta kjör þín. Ef ógift siúlka
dregur þetta spil boðar það að hún mun giftast
háttstandandi embættismanni.
Tigul ás boðar ánægju og farsæld og um-
hyggjusemi nánustu ættingja.