Hlín. - 15.12.1903, Síða 2
2
Hlín.
Nr. 1. 2. b.
en þó með sem réttustum skilningi og næmustum til-
finningum fyrir hinni verulegu þýðingu þeirra, fyrir vort
andlega og líkamlega líf. — Gerurn oss því allir gleði-
leg jól. __________
Eg þakka ykðr, kaupendur Hlínar, fyrir það, sem
af er, og vil mega treysta yður fyrir framtíðinni.
Þér afsakið vona eg, hvað útkoma Hlínar hefir
dregizt nú tvö síðustu skiftin; það stafar af venju
fremur miklu annríki útgefanda við óhjákvæmileg störf.
Eg er fullráðinn í að halda Hlín áfram þrátt fyrir
nokkura tilfinnanlega örðugleika, í því trausti, að þér
allir gerið það, sem í yðar valdi stendur til þess að
efla útbreiðslu hennar og skilvísa borgun. Til þess að
afstýra þeim örðugleikum, að svo miklu leyti sem unt
er, sem til þessa hafa verið tiifinnanlegastir, sem er
kaupendafæð og sein skil víða hvar — og hefi eg þó sent
út yfir 1000 eint. af Hlín þessi 2 fyrstu árin, en sumt
af því óselt enn, og mest óborgað — þá hef eg nú
hreytt dálítið til með útgáfu fyrirkomulagið til hægðar-
auka og til þess aðallega að geta tryggt ritinu margfalt
meiri útbreiðslu en það hefir enn þá; vona eg, að þér
takið þeirri breytingu vel og vinsamlega, enda er hún
jafnframt yður til hagsmuna.
Stefna Hlínar verður framvegis hin sama og hingað
til, sem só sú, að reyna til að glæða framkvæmdalíf
landsmanna og áhuga þeirra fyrir því að bæta kjör síu
á heiðarlegan hátt, með þeim meðulum, sem við eiga
og fyrír hendi eru. En til þeirrar stefnu tel eg fleira
en það eitt, sem beiniínis hijóðar um verkleg málefni,
ef það að eins er þess eðlis, að það miði til þess að
gera fólkið farsælt. Eg bið menn að athuga þetta og
gera elclci ofstrangar kröfur til þess að Hlín ræði ekkert