Hlín. - 15.12.1903, Síða 17

Hlín. - 15.12.1903, Síða 17
Nr. 1 2. b. Hlín. 13 vera til alstaðar hér á landí, þar sem garðyrkja er nokkuð stunduð. Það borgar sig vel. Með tilheyrandi áhöldum kostar hann 28 krónur hér í Rvík. HVER SEM SENDIR MÉR PÖNTUN að einum eða fleirum af þessurn garðplógum fprir 1. febrúar n. k., ásamt 10 kr. upp í hvern einn og afganginn að fullu fyrir eða við afhending hór, fær hann frítt fiuttan á tiltekna höfn með fyrstu skipaferðum n. k. vor. — Mildll afsláttur, ef 6 eða fleiri eru pantaðir í einu fyrir tiltek-. inn tíma. Allar pantanir að þessum plógum sendist eftir þessari áritun: S. B. Jónssoil, Reykjavík. Garðplógar þessir hafa verið reyndir hér af 3 mik- ilsvirtum jaröyrkjumönnum, þeim hr. Einari Helgasyni, garðyrkjufræðing í Rvík, hr. Jóni Jónatanssyni, búfr. og bústjóra á Kjalarnesi. og hr. Vilhjálmi Bjarnarsyni, óðals- bónda á Rauðará við Rvílc, og hafa reynzt mjög vel. Hinir tveir síðarnefndu gefa þeim svohljóðandi vitnisburð. Oarðplóga þá, sem hr. S. B. Jónsson í Rvík hefir til sölu, hefi eg reynt, og eru þeir að mínu áliti eitthvert bezta og handhægasta verkfæri sem hægt er að fá af því tægi. Þar sem garðar eru npkkrir til muna og raðsán- iug viðhöfð, eru þeir ómissandi. Þeir spara vinnu og vinna verk sitt vel. pt. Reykjavík, 18. apríl 1903. Jón Jónatansson. Garðplógur sá, sem eg hefi eignast frá hr. S. B. Jónssyni í Rvík, hefir reynzt mér í alla staði ágætlega vel, og gef eg honum mín allra beztu meðmæli. Hann sparar og léttir alla vinnu við garðrækt (sérstaklega. við jarðeplarækt) stórkostlega mikið; — við sáninguna og hreinsun íllgresis — auk þess sem hann plægir ogherfar. Eg er sannfærður um, að notkun hans er mikilsverð vörn gegn hinni skaðlegu jarðeplasýki, sem hór gengur, með því að hann, jafnframt og hann hreinsar illgresið, einnig hreykir moldinni svo vel upp að plöntunum, og ver þær fyrir „bakteríunui", sem þá fellur fremur framhjáþeim niður í rásirnar beggja megin. En það, að hreykja moldinni þarmig, hefir eftirminni reynzlu auk þess stórmikil áhrif á vöxt jarðeplanna. Rauðará við Rvik, 10. ág. 1903. Vilhjálmur Bjarnarson. a

x

Hlín.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín.
https://timarit.is/publication/447

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.