Hlín. - 15.12.1903, Síða 37

Hlín. - 15.12.1903, Síða 37
Hr. 1. 2. b. Hlín. 23 fara útgufunar vessa eða svita frá yfirborði iíhamans, Allir vita af reynslu að menn borða meira þegar kalt er í veðri en í hitum. Því kaldara sem er, ]>vi meira. brensluefni þarfnast líkaminn. En hvern veg fer nú, ef menn lifa í því loftslagi, að útvortis- og innvortishitinn er næstum sá sami? Eigi dugir manninum þó, að hætta að éta og drekka, því þá er auðsætt að líkaman- um óðum hnignar og veiklast. Við það að líkaminn kólnar að utan, eykst blóðstraumurinn út að húðinni eða yfirborðinu. Starf hjartans eykst, og jafn ótt og blóðið kemur út undir yfirborðið, þá kólnar það. Ef nú innvortis hitinn vex, þá kemur fram sviti. En tii þess að svitinn geti kælt sem mest, þarf hann jafnóðum og hann kemur, að gufa biirt af líkamanum. Nú vitum vór það allir, að rakir hlutir þorna fyr í þurru, en saggasömu lofti. Til allrar hamingju er einmitt svo á- statt í hitabelti jarðarinnar, að loftið þar er vanalega miklu þrungnara af vatnsgufu en í kuldabeltinu. Ef hitinn innvortis eykst, verður svitinn meiri, og ef svita- útgufunin og svitaleiðslan frá líkamanum getur eigi haldið líkamshitanum innan vissra takmarka, þá veikl- ast maðurinn og hann sýkist af hita. Önnur er og hættan, sem liggur fyir norðurlandabúum í heitu lönd- unum, og hún er, að annaðtveggja borðar hann meirii og kröftugri fæðu, en iíkami hans þarfnast, og þá veik- ist hann, því að hinn eðlilegi líkamshiti hans eykst um of, og mótstöðu kraftur líkamans gegn sóttnæmum sjúk- dómum rénar, eða að hann missir matariistina og borð- ar æ minna og minna, alt eftir því sem hitinn heimtar, en þá nærist líkaminn of lítið og þá kemur í norður- landabúana slýja og magnleysi með öllum þeim veikind- um, sem því eru samfara. Ef hann nú neyðist til samt að vinna þunga vinnu og óvana í miklum hitum, þá

x

Hlín.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín.
https://timarit.is/publication/447

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.