Hlín. - 15.12.1903, Page 43
Nr. 1. 2. b.
Hlín.
25
hafa á íslandi. Yið ættum sannarlega eigi að bjóða
þeim að koma hingað, að eins þess til að missa heils-
una.
Eg veit að margur hér mun hyggja mór þegjandi
■þörfina, að ég minnist á þetta mál, því að oft má satt
kyrt liggja; en eg hefi gert það af því að eg ann ís-
landi og vildi sjá öllum íslendingnm líða sem bezt.
Eigum við, sem hór í álfu dveijum, enga sök á
því, að menn flykkjast brott af íslandi? Yæri eigi
sæmra að styðja að því, að menn heima tækju nú í
sig nýjan dug, með nýrri öld; kendum þeim að yrkja
jörðina á hagfeldari hátt en áður; kendum þeim hérlent
verklag; kendum þeim að sá til korns; kendum þeim
skógrækt; kendum þeim að rista fram mýrarnar og for-
æðin; kendum þeim að búa til almentiilega vegi; kend-
um þeim að ná þeim huldu fjársjóðum, sem enn liggja
óhreyfðir t fjöllunum; kendum þeim að koma í veg fyr-
ir, að landið blási upp og eyðist. Landið er enn fagurt
•og frítt. —
Hkr. le/7 ’03.
Bragð er að þá börnin finna.
Yerkmannafélögin í Toronto hafa gengið í félag
við verkamannafélögin í Winnipeg, til að vinna á móti
innflutningi frá Bretlandseyjum og annarstaðar að úr
ríkinu hingað til Canada. Hið fyrnefnda félag hefir
sent opið bréf til verkafólks um alt ríkið og fullvissar