Kirkjuritið - 01.01.1945, Side 8

Kirkjuritið - 01.01.1945, Side 8
Janúar. Áfram með Guði, Áramótahugleiðing. Áramót eru viðburður, sem ávallt gerist liægt og liljótt. Konungur tímanria liefir ekki liátl mn sig. Vér menniriiir förum öðruvísi að, oft og tíðum. Vér leggjum lil hávaðann og glauminn á gamlárskvöld. En gamla ár- ið hverfur og nýja árið kveður dyra hægt og hljóðlega. Þannig hvarf árið 1944, merkisárið mikla, sem getur aldrei gleymzt, meðan íslenzk hjörtu slá, og nokkur tunga talar og skilur íslenzkt orð. Og árið 1945 rann upp úr skauti miðnæturinnar jafn liægl og hljótt, með allar sínar ráðgátur og öll sín fyrirheit. Víða í gamla testamentinu, einkum þó í Davíðssálm- um, íhuga trúmenn hinnar útvöldu þjóðar liðna ævi hennar og merkisviðburði fyrri tíma, og finna við þá í- hugun tilel’ni til að lofa og vegsama Guð af öllu hjarla fyrir miskunn hans, trúfesti og handleiðslu, sem varir frá kyni til kyns. íhugun ársins 1944 gefur íslenzku þjóðinni tilefni lil slíkrar lofgjörðar. Svo mildir hafa verið atburðir þess, svo augljós hin guðlega handleiðsla. Vér ættum að kunna að veita hverjum degi og hverju æviári viðtöku með bljúgri þökk lil föður lífsins, sem gaf oss þá gjöf. A. m. k. ættum vér að kunna það, sem lifað höfum nógu lehgi til þess -að sjá, hve skammt get- ur verið milli lífs og dauða í hverfleikans heimi. Eitt ár er tiltölulega stór hluti mannsævinnar. Hví skyldum vér þá ekki við hver áramót þakka Drottni, hve góður hann er að hafa unnt oss að halda lífi allt hið liðna ár, og leyft oss að ganga að störfum vorum og stutt oss og J

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.