Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 15

Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 15
Kirkjuritið. Kirkjan og framtíðin. 9 heimilum, skólum né kirkju. Hverjum bæri að eiga um það við sjálfan sig, á hvern hann tryði og hvernig hann lifði. Ekki er hægt að neita því, að aðhlástur slíkur sem þessi hafi haft áhrif á lítt þroskað fólk, sem ekki var þess megnugt að taka sjálfstæðar afstöður til mála, enda var séð um, að á sama tíma væri það lnieppt i spennistakk nýrra kennisetninga eða trúarbragða, þar sem manndýrkun kom í stað guðsdýrkunar Fylgd fjöldans átti kirkjan ekki að fagna, meðan norn- ir bvltinga og blóðs gólu hæst galdur sinn. Eins og æðri tónlist verður stundum.að víkja fyrir háværum tónum jazz, eins var meir hlustað á skrum stjórnmálaleiðtoga um skeið en óminn frá akri ódáins. En nú hrátt munu augu mannkynsins taka að opnast fyrir því, liversu voldug þau eru áhrifin, sem hnitmið- aður áróður getur haft á líf og örlög þjóða. Það eru hræringar hugans, lífsstefnan, sem heinlínis kalfar yfir nienn tortimingu eða tryggir mönnum frið og öryggi. Hjörtu mannanna eru einskonar furðuleg Gróttakvörn, sem getur malað heift, her og óáran, eða þá gull, frið og sælu. Vér íslendingar ættum að vera langminnugir þess, hve afdrifaríkar hugar og lífsstefnur geta orðið um óra fjöld ára. Eru ekki aldirnar nærfelt sjö, síðan forfeður vorir glötuðu fullu sjálfstæði? Og voru það ekki fyrst og fremst lífssjónarmið höfðingja þessa tíma og valdabarátta, sem smíðuðu járnfjötrana? Hún varð löng og harmslungin saga áþjánarinnar, sem beið þjóðarinnar, og aldrei má hún gleymast. í hinu fræga leikriti Hamlet eftir Shakespeare segir vofan, sem birtist á sjónarsviðinu, á þessa leið: „Eg em andi dæmdur um hríð að hvarfla laus um nætur, en fasta um daga, bundinn heljarháli, unz hinar svörtu syndir, er ég drýgði í lífi mínu, hrunnar eru út“. Slík var ganga þjóðarinnar undanfarnar aldir. En smátt og

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.