Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 18

Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 18
12 Páll Þorleifsson: Janúar. um, og smíða plóga úr sverðunum. Þeir munu aftur á ný verða færir um að reisa merki lýðræðisins, þvo það hreint af blettum gamalla yfirsjóna, endurnýja liug- sjónir þess, sem eiga að rætast fyrst og fremst í boðskapi sjálfs Krists um ódauðlegt gildi hverrar mannssálar. Á- lierzla mun á það lögð i kömandi framtíð, að hverjum verði tryggt nauðsynlegt lífsviðurværi. Ilefir slíkt verið svartur blettur á menningu þjóðanna, að hungurvofan skuli ekki með öllu útræk úr mannlegu lífi, á sama tíma sem gnægð matvæla hefir verið til. Réttur manna til sjúkravistar sé og tryggður, styrkir í elli og við örkuml. Brunnur menningarinnar sé öllum opinn jafnt, fátækum sem ríkum. Áherzla sé lögð á það að lyfta hverjum þegni eins hátt til andlegs þroska og þróunar sem unnt er. Rækt sé lögð við þroskun vitsnnma, en þó um fram allt við mótun skapgerðar og fágun hjartans. Þær þjóðir, sem tundri varpa hver yfir annars' híbýli, skortir eklci vitsmuni, þekkingu né stálhörku i framtaki og vilja. Það er annars, sem vant er. Hjörtu þeirra eru köld, mildina, mannúðina, kærleikann skortir. Mannkvnið skortir nú, fremur en allt annað, að komast í innilegt trúarsamfélag við Guð, uppsprettu kærleikans og frið- arins. Að striðinu loknu niun gerð ákveðin og mark- viss tilraun til þess að koma á slíku sambandi. Lausn þess mikla vandamáls mun ein geta •til fulls tryggt varanlegan, hamingjusamlegan frið einstaklinga og þjóða í millum. Vér íslendingar munum reyna eftir megni að fylgjast með öllu því, sem bezt stefnir i lifi og menningu annarra þjóða að stríði loknu og reyna að taka þátt í þeirri ný- sköpun, sem fram mun fara í viðreisnarátt. í spádómsbók Sakaría standa rituð þessi orð: „Sjá, ég hefi burtnumið misgjörð þína frá þér og læt færa þig i skrúðklæði“. Slík stór og liátíðleg tímamót hafa nú runnið loks upp í lifi þjóðar vorrar. Óheilindi, valda- græðgi, taumlaus eigingirni forystumanna færðu þjóð-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.