Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 19

Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 19
Kirkjuritið. Kirlcjan og framtíðin. 13 ina í nær sjö alda tötur áþjánar. En nú loks liefir hún náð >að kasta þeim flíkum og hefir færzt í skrúðklæði hins frjálsa lífs. En — á þessum liátiðlegu dögum er sem hrjótast vilji fram minning um forna, latneska ljóðlinu, sem varpar ofurlitlum skugga inn í hugann. Hún er þannig: „Þeir, sem sigla yfir höfin, skipta um himin, en ekki um liuga“. Og í kjölfarið kemur hún áleitin qg uggvænleg þessi spurning: Eru þær hinar svörtu syndir þjóðarinnar raunverulega brunnar upp? Myndu menn enn neita því að slá af kröfum flokks síns til þess svo að týna þar með heiðri lands og þjóðar? Myndu menn enn vilja kasta á milli sín fjöreg'gi þjóðarinnar i von um persónulegan ábata? Nei, slíkt mun ekki lienda framar. Svo sterk og voldug munu þau reyriast áhrifin frá þess- um vor-tímamótum, að liver sá maður, sem liefja vildi sundrung, mun dæmdur i yztu myrkur áhrifaleysis. Þungi ábyrgðarinnar yfir fengnu sjálfslæði mun leggjast á herðar livers og eins og knýja liann til aukinna átaka, lil heilla fyrir land og þjóð. Hinum blásnauðu forfeðrum vorum, bundnum hlekkj- um einokunar og áþjánar, tókst þrátt fyrir allt að rísa til þess menningarlífs, sem aðdáun og undrun liefir síð- an vakið. Það frelsi, sem fengizt liefir nú til fulls, er laugað tárum þeirra, vígl baráttu þeirra og margföldu stríði. Ættum vér ekki að vera fær um að varðveita þann arf? Er liann kannske ekki nógu dýru verði keyptur? Og þjóð með fullar liendur fjár og langþráð frelsi ætti að vera þess megnug, eigi síður en fyrri kynslóðir, að lifa liér heilbrigðu menningarlífi. Einhver snarasti þátturinn í menningarlífi þjóðar- innar hefir frá öndverðu verið spunninn af kristnum toga. Kirkjan var miðstöð mennta og brjóstvörn alls þess, sem bezt horfði í lífi þjóðarinnar, skjól og athvarf á tímum sorgar og neyðar og jafnvel einnig framlierji í verldegum umbótum. Klerkar og kennilýður voru jafn- framt bændur i sveit og þá um leið bundnir örlögum

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.