Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 28

Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 28
22 G. J.: Bréfakaflar frá Broddanesi. Janúar. flutti mig í anda, úr steinhúsinu og i gamla moldarbæiun minn, og hlustaði þar á lestur með foreldrum mínum og fleirum, eins og í gamla daga. Þar var ekki gleymt að þakka fyrir vernd og i)lessun. Það er eins og þyki nóg að minnast missiraskiptanna á fyrsta vetrardag, en það er ekki rétt, Guð er aldrei of oft dýrkaður eða tilbeðinn. Hver stund og tími er í lians hendi, og' okkur mönnun- um miðlar liann af þessum stundum og tíma eftir eigin vild. Og aldrei erum við sælli en þegar við lifum í sam- félagi við hann. Mig' langar til að segja yður frá einu. Ég veit, að þér takið ekki til þess. Stundum, áður á árum, hafði ég' mikið að gjöra, þegar ég tók á móti heyi og annaðist um þurk, með öðrum verkum, þá datt mér i hug, þegar ég þurfti að rifja stóra flekki, að nú skyldi ég reyna að húa til ræðu, á meðan ég væri að rifja, þá myndi verkið verða léttara. Ég valdi mér guðspjöllin, oftast þessi tvö: „Hinn misk- unnsami Samverji“ og „Tíu líkþráir“. Það guðspjall fannst mér svo vel til fallið að sumrinu, jiá eru of fáir, sem snúa aftur til að gefa Guði dýrðina. Svo niðursokk- in var ég, að ég vissi ekki af fyr en flekkurinn var bú- inn, og ég fann ekki til þreytu, samstarf sálar og líkama er ágætt, þar er hæg't að bera byrðarnar í sameiningu. Ég vona, að þér fvrirgefið þessar línur, þessa mola, sem ég týni saman, meðan ég sé til að skrifa, en nú er sjóninni óðum að hraka, og' nóttin dettur á, svo að ekki sjást strikin á pappírnum. Jæja, ég' er komin á áttunda tuginn og lofa Guð fyrir liðna birtudaga. * Þegar ég gekk síðast frá ávinnslunni i vor, bað eg Guð að blessa strain, ems og ég er vön. Sú bæn er heyrð, engú stráinu hefir liann gleymt. I haust, þegar lokið er heyskapnum, geng ég að hlöðunum og bið um blessun Guðs yfir heyfenginn, jiað gjöri ég á hverju hausti, -að enduðum slætti. Guðbjörg Jónsdóttiv.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.