Kirkjuritið - 01.01.1945, Síða 43
KirkjuritiS.
Hjalti i Fjarðarhorni.
37
Með líkum hug signum vi'ð nú leiði Hjalta, sem þekktum hann.
Við efum það ekki, að hann var einn þeirra, sem sæluboðura
frelsarans nær til:
Sælir eru liiartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
4. G.
Vörðubrot.
Það er merkilegt og mjög gleðilegt, að leikmaður hefir nú
•'áðizt í að rita um jafn erfitt efni og fyrv. alþingism. Jónas
Kuðmundsson liefir tekið sér fyrir hendur að ráða og útlista
' bók, sem nýlega er út komin og hann nefnir „Vörðubrot".
Ég geri ráð fyrir, að þeir séu ekki margir innan prestastétt-
arinnar, sem hefðu árætt og leitast við að leysa gátur spádóma
Gamla testmentisins, og því siður spádóma Opinberunarbókar
Jóhannesar, og sízt leyst þau huldu mál betur en höf. hefir gjört.
Pyrst sýnir hann fram á, hvernig spádómar þeir, sem pýra-
mídafræðingar telja skráða i „mikla píramídanum“, hafa rætzt
fiegnum tímana, en þó einkum frá 1914 til þessa dags. Þvi næst
skýrir hann frá þeim spádómum, sem enn eru ekki komnir
fram, en munu ske á þessu og næstu árum. Verður þvi mjög
fróðlegt að sjá, live vel þessum fræðimönnum hefir tekizt að
ráða þessar gátur, þvi að þótt pýramídinn bendi til þess, að ein-
llv<?r dagur muni verða þýðingarmikill i sögu veraldarinnar,
l}á sýnir hann aldrei, á hvern liátt það muni verða; en þesslr
skýru merkisdagar eru: 4. marz 1945, 17. mai 1948, 11. nóv.
'948 0g 20. ág. 1953.
Allur meginhluti bókarinnar er þó hugleiðingar um og skýr-
'ngar á spádómum Biblíunnar og einkum Opinberunarbókar-
'nnar. Höf. fer liér nýjar leiðir og mjög íliugunarverðar, því að ó-
neitanlega virðist hann færa fram skýra og glögga lausn gátunn-
ar niiklu um endalokatiðir þessa timabils, sem nú er.
Ég held, að það væri mjög hyggilegt fyr.ir alla, sem vilja
kynna sér betur spádómana, og þá einkum spádómana um hið
síðasta tímabil, það sem nú er, sem 1G.—18. kapítular Opin-
berunarbókarinnar sérstaklega eiga við, að lesa þessa bók og
hugleiða þær skýringar, sem þar eru fluttar, en skoðun höf.
er sú, að mál spádóma Opinberunarbókarinnar sé eingöngu
Ékingarmál, sem ómögulegt sé að leysa, með fullri vissu, fyr en
"fikjutrén fara að skjóta frjóöngum“, fyr en rás viðburðanna
bendir lil þess, hvað verða muni. Og í ljósi þess, sem nútíðin