Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 44

Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 44
Fréttir. Janúar. 38 bendir fram til, reynir höf. að skýra gátur þær, sem Opinber- unarbók Jóhannesar flytur. „Ég hef sagt yður þa'ð fyrirfram, til þéss að þér trúið, þegar það kemur fram“, sagði Jesús við lærisveina sína, og sennilegt er það líka, að tilgangurinn með opinberuninni miklu, sem Jóhannesi var birt, sé sá að fá oss mennina til þess að trúa. þegar allt þetta kemur fram og vér skiljum alla leyndardóm- ana. Það er sannarlega ánægjulegt, þegar leikmenn taka sér þann- ig fyrir hendur að rannsaka þessa huldu dóma og liafa áræði lil þess að birta þessar hugleiðingar sínar fyrir alþjóð, en þó einkum þegar svo skýr og góð rök eru færð fyrir þeim, eins og höf. hefir gjört. Ég, fyrir mitt leyti, verð að játa það, að ée liefi hvergi séð aðgengilegri skýringu á Opinberunarbókinni en er í þessari bók, því að enda þótt ég áður væri mjög hrifinn af skýringum Madsens biskups, kennara míns, um þessi efni, og þar væri margt skarpviturlega mælt, þá held ég þó, að hér sé stigið stórt stig lengra fram og' i enri réttari átt til lausnar þess- ara huldu mála. Þessi fáu orð rita ég til þess að vekja athygli embættisbræðra minna á þessari nýútkomnu bók, því að ég held, að liún muni leysa margar gátur fyrir þá, svo að þeir eigi hægra með hér eftir að flytja söfnuðum sinum þann boðskap, sem hulinn er i hjúpi likingarmála spádómanna, svo að dýrð Guðs-sonarins Ijómi oss öllum í nýrri og fegurri mynd, fögnuður vor verði enn fyllri við elsku og vizku hans, er gáturnar leysast, lotning vor verði sönn og heilög fyrir honum, sem ræður rás viðburða heims og lífs. Guðmundur Einarsson. Fréttir. Frumvarp til laga um kirkjubyggingar. Forseti sameinaðs Alþingis, Gisli Sveinsson sýslumaður, hefir lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um kirkjubyggingar. Er það frumvarp í samræmi við erindi lians bæði í útvarp og á almenn- um kirkjufundum um það, að ríkissjóður styrki söfnuði landsins lil kirkjubygginga. Gjört er ráð fyrir, að ríkið greiði % hluta kostnaðar við að reisa og endurbyggja kirkjuhús þjóðkirkjunn- ar, en hlutaðeigandi söfnuðir greiði annan stofnkostnað. Þetta

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.