Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 46

Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 46
40 Barnamessur á Bíldudal. Janúar ánægjulegt fyrir Kirkjuritið að fá fréttir af þessu starfi og þeirri gróandi, sem fyigir. Einn af yngstu prestunum, séra Jón ísfeld á Bíldudal, er hinn mesti áhugamaður á þessu sviði. Hefir liann verið barnakennari áður en liann varð prestur og kann ágæt tök á hörnum. Hann er maður vinsæll mjög, og ekki sízt af börnum. Hefir hann hafið prestsstarf sitt við mikinn orðstír, og þá einkum æskulýðsstarfið. í bréfi til ritstj. Kirkjuritsins skrifar hann svo meðal annars: „Eg hefi reynt eftir megni að hafa áhrif á börnin, einkum með barnaguðsþjónustum. Það eru dásamlegar stundir, sem ég þar hefi átt, og ógleymanlegar. Eg sendi þér hér með mynd frá siðustu barnaguðsþjónustu þátttakendunum hér á Bíldudal. Fá- ein börn eru ekki með á myndinni. Ég vildi, að sálir þessara Jitlu viria minna mættu sífelt haldast sem fegurstar og saklaus- astar. Eg elska þessar ósnortnu, saklausu sálir“. Kirkjuritið óskar blessunar Guðs yfir allt þetta starf kristni- lífi barnanna til jjroska. 77/ kaupencla Kirkjuritsins. Um leið og Kirkjuritið h.&fur göngu sina 11. árið, þakkar það öllum kaiipenclnm sínum og stuffningsmönnum, er það hefir eignazt liðinn áratug. Þeim er það að þakka, að ritið hefir getað haldið stefnu sinni svo sem ætlað var i upphafi Sumir þeirra hafa sent þvi gjafir og margir látiö í Ijós þá skoðun, að eðlilegt væri, að árgjaldið fgrir það hœkkaði. Að þessu verður nú liorfið frá byrjun þ. á. Er árgjaldið hækk- að i 15 krónur, og e.r það þrátt fgrir þessa hækkun eitthvert ódýrasta tímarit á landinu. Jafnframt ve-rður ritið aukið að arkafjölda frá því, er var siðastl. ár, og lögð áherzla á það, að ritið komi sem reglulegast til I&senda sinna. Óskar Kirkjuritið öllum lesendum. sinum árs og friffar. Kirkjuritið kemur út i heftum, 1—2 í senn, alla mánuði ársins nema ágúst og sept'. Verð innanlands 12 kr. í Vesturheimi 3 doll- arar. Gjalddagi 1. apríl. Afgreiðsla og innheimtu annast annast frú Elisabet Jónsdóttir, Hringbraut 144, sími 4775, Reykjavík.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.