Muninn - 01.11.2002, Blaðsíða 1
Undir skólans menntamerki, mætast vinir enn í dag...
Árshátíð Menntaskólans á Akureyri 2002
Hin stórglæsta árshátíð
Menntaskólans á Akureyri var
haldin hátíðleg 29. nóvember
síðastliðinn í íþróttahöll Akur-
eyrarbæjar. Gaman er að sjá
hversu miklu við fáum áorkað
með því að sameina krafta okk-
ar og var hátíðin góður vitnis-
burður um það. Eftir margra
vikna undirbúning, stigaukinn
eftir því sem nær dró var stóra
stundin runnin upp og fjórðu-
bekkingar, útskriftarárgangur
skólans, gengu prúðbúin í sal-
inn með inspectrix scholae í
broddi fylkingar. Heiðursgestur
kvöldsins var enginn annar en
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra og var það vel
við hæfi þar sem hann er sjálf-
ur stúdent frá MA en jafnframt
var hann kennari til margra ára
og síðar aðstoðarskólameistari.
Hátíðin hófst venju sam-
kvæmt á því að viðstaddir
sungu skólasönginn, Undir
skólans menntamerki eftir
Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi og í kjölfarið fylgdi
fagur söngur kórs skólans und-
ir stjórn hins nýja kórstjóra,
Erlu Þórólfsdóttur. Vakti flutn-
ingur þeirra mikla lukku en að
þessu sinni var brugðið frá
fornum hefðum og flutti kórinn
m.a. magnaða útfærslu á rokks-
infoníu hljómsveitarinnar
Queen, Bohemian Rapsody.
Eftir sönginn steig veislu-
Kór Menntaskólans brá af gömlum vana og söng m.a. Bohemian Rhapsody eftir Queen.
stjóri kvöldsins, Soffía Krist-
jánsdóttir schriba scholae, í
pontu og setti hátíðina form-
lega og bauð fólki að taka til
við veitingar þær sem meistara-
kokkar Bautans höfðu laðað
fram fyrir viðstadda. Meðan á
borðhaldi stóð flutti formaður
skólafélagsins, Borgný Skúla-
dóttir inspectrix scholae, ávarp
sitt og sagði hún meðal annars
að heimurinn væri að stækka
og minnka í senn. Að ávarpi
hennar loknu steig á stokk
nokkuð sérstök hljómsveit,
Bólbræður. Þeir félagar gerðu
það gott á Stiðarvauk, óraf-
magnaðri hljómsveitakeppni
skólans fyrr í vetur en þeir
flytja eingöngu frumsamin lög.
Ræðukeppni erkifjendanna;
MA og VMA mætast í Kvos MA
Menntaskólinn á Akureyri mynduðu órjúfanlega liðsheild.
og Verkmenntaskólinn á sama
stað hafa löngum verið óvinir,
jafnt á borði sem í orði. Þegar
verkmenntskælingar mættu í
Kvos Menntaskólans, öðru
nafni ljónagryfjuna, kom þetta
bersýnileg í ljós. Umræðuefnið
var hefnd og var MA með en
VMA á móti.
Verkmenntaskólinn sendi til
okkar fjóra hugrakka stráklinga
sem að svo söfnuðust saman í
lið þegar í Kvosina var komið.
Þeir eru Alex Björn Stefánsson,
Bjartur Guðmundsson, Hjörtur
Þór Bjarnason og loks Árni
Gunnar Ásgeirsson.
Lið Menntaskólans var hins
vegar skipað fjórum þrautþjálf-
uðum sérfræðingum á sviði
mælsku og rökfærslu sem að
Liðstjóri var Karvel Steindór
Pálmason, frummælandi var
Helga Valgerður ísaksdóttir,
Gunnar Már Gunnarsson var
meðmælandi og loks var stuðn-
ingsmaður Hannes Ingi Guð-
mundsson. Liðsmenn skólans
stóðu sig allir með stakri prýði,
og raunar var Hannes Ingi val-
inn ræðumaður kvöldsins.
Eins og við mátti búast féll
sigurinn Menntaskólanum í
skaut og var munurinn 45 stig,
og í raun kom geta og þraut-
seigja nemenda VMA nokkuð
á óvart. En deginum ljósara er
að Menntaskólinn getur séð
fram á bjarta tíma í Morfís í
vor.
20fid@ma.is
Eftir það flutti sveit tónlistar-
fólks úr skólanum dinnertón-
list, viðstöddum til yndisauka.
Að loknu borðhaldi hófst
fjöldasöngur undir stjóm Jóns
Áma Benediktssonar og Gunn-
hildar Völu Valsdóttur. Enn var
vikið frá gömlum hefðum cg
sungið lagið “Rangur maður”
sem hljómsveitin Sólstrandar-
gæjarnir gerðu vinsælt hérna
um árið. Undirleik í fjölda-
söngnum annaðist Elvar Ingi
Jóhannesson konsertmeistari.
Því næst steig hljómsveitin
Hrafnaspark á sviðið og nutu
þeir dyggrar aðstoðar tveggja
mætra manna, þeirra Dan
Cassidy fiðlueikara Papanna og
Hafliða Arnari Hafliðasyni sem
söng lagið „All of me“ með
miklum tilþrifum.
Minni karla og kvenna voru
þetta árið flutt af þeim Karveli
Steindóri Pálmasyni og Þór-
unni Þórhallsdóttur. Tíunduðu
þau kosti og galla hins kynsins.
Þá flutti hljómsveitin Grettir
kraftmikið rokk sem hristi að-
eins upp í samkomunni. Dans-
hópurinn PRIMA hefur látið
mikið fyrir sér fara í vetur og
að sjálfsögðu sýndu þau fram-
andi dans, m.a. magadans og
flamenco.
Að því loknu steig veislu-
stjóri í pontu og kynnti til leiks
meistara meistaranna, sjálfan
skólameistarann Tryggva
Gíslason en þetta er hans síð-
asta ár hér í skólanum. í ávarpi
sínu til viðstaddra þakkaði
hann nemendum fyrir góða og
vel skipulagða árshátíð.
Að lokum flutti LMA, leik-
félag skólans, stutt brot úr
verkinu „Gestur til miðdegis-
verðar“, skólameistara til heið-
urs, en hann lék þar aðalhlut-
verkið þegar LMA setti það
verk upp árið 1957. Þar með
var formlegri dagskrá lokið og
við tók dansinn langt fram eftir
nóttu. Paparnir spiluðu í saln-
um en á efri hæð léku Þuríður
formaður og hásetarnir fyrir
gömlu dönsunum. Hátíðinni
lauk loks klukkan þrjú að nóttu
til og þá tók tiltektin við. Það
var vissulega leiðinlegt að rífa
allt niður en minningin um árs-
hátíðina mun þó áfram kæta
mann.
Örlygur Hnefill Örlygsson
BOKABUÐ
jSI
JONASAR sf