Muninn - 01.11.2002, Blaðsíða 15
MUNINN_______________________________________FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 15
TONLIST
Saga Radiohead
Það var árið 1982 sem Thom Yor-
ke, aðeins 14 ára að aldri, spurði
Colin Greenwood hvort hann vildi
stofna hljómsveit með sér og Ed
O’Brien. Phil Selway kom til með
að spila á trommur og bróðir Colins,
Jonathan Greenwood, vildi líka vera
með.
Hljómsveitin spilaði í fyrsta sinn á
Jericho’s Tavern í heimabæ sínum
og nokkrum árum síðar, árið 1987 í
Oxford. Þá hétu þeir On a Friday en
hljómsveitin var einmitt stofnuð á
föstudegi. Fyrsta demóið þeirra var
gert 1991, bekkjarbróðir Thoms og
Colins fór með demóið til Courtyard
Studios og þeim leist ágætlega á
þetta demó, það var allt voðalega
staðlað en eitt lag, númer 15, stóð
upp úr að þeirra mati. Þetta var eitt-
hvað nýtt, eitthvað öðruvísi. Sex
mánuðum síðar gáfu þeir út nýtt
demó í sama stíl og 15. lagið. Þetta
leist þeim hjá Courtyard Studios vel
á, nú var sveitin komin með per-
sónuleika.
Næsta demó var kallað The Man-
ic Hedgehog Demo og í kjölfar þess
buðust þeim aðrir tónleikar á Jer-
icho’s Tavern. On a Friday byrjuðu
að spila oftar, fjölmargir útgefendur
fengu áhuga og það endaði með að
EMI bauð þeim plötusamning.
On a Friday fengu góða dóma fyr-
ir tónleika en einnig var í dómunum
var minnst á nafnið á hljómsveitinni
sem var í besta falli ágætt. Þeir
ákváðu að skipta nafninu út fyrir tit-
il lags á plötu Talking Heads, True
Stories sem hét Radio Head.
Frumraun þeirra var fjögurra laga
plata sem hét Drill EP og kom út í
mars 1992. Lagið Prove Yourself
náði 101. sæti breska smáskífulist-
✓
ans. A upptöku næstu smáskífu voru
lögin Inside My Head og Lurgee.
Hvorki Radiohead né upptökustjór-
unum fannst Inside My Head vera
neitt rosalegt lag, en Parlophone
valdi það á næstu smáskífu sveitar-
✓
innar. A þeim eina degi sem þeir
fengu til að taka upp smáskífuna
byrjuðu Radiohead að spila lag upp
úr engu. Þegar lagið var búið sögðu
upptökustjórarnir að þetta nýja lag
væri betra en þau sem átti að taka
upp. Parlophone fannst lagið svo
gott að þeir ákváðu að gera breið-
skífu með Radiohead.
Pablo Honey
Pablo Honey var tilbúinn á þrem-
ur vikum. Creep var gefið út á smá-
skífu í september 1992, en Pablo
Honey átti að gefa út árið eftir.
Creep varð ekkert vinsælt, nokkrir
góðir dómar, náði lítilli spilun og
komst aðeins í 78. sæti breska smá-
skífulistans. Síðar breiddist orðróm-
urinn út og smáskífan náði 34. sæti á
bandaríska smáskífulistanum, en
Pablo Honey fékk gullplötuna. Einu
ári eftir útgáfu Creep var gefin út
endurgerð af laginu í Bretlandi, sem
náði 7. sæti smáskífulistans.
✓
Alagið á Radiohead við gerð
næstu plötu varð allt of mikið fyrir
þá félaga, þannig að þeir ákváðu að
ferðast um Asíu á tónleikaferðalagi.
Það fékk þá til að slaka á og skilja
hvað þeir voru að gera. Þeir snéru
aftur til Bretlands og kláruðu plöt-
una á mettíma.
The Bends
The Bends var gefin út 1995, og
þeir voru búnir að sanna að þeir
væru meira en one hit wonder.
Fimmta smáskífan, Street Spirit, var
gefin út 18 mánuðum eftir The
Bends og lagið komst á Topp 10 á
Bretlandi.
Ok Computer
Radiohead bað Nigel Godrich að
smíða og manna handa þeim hand-
helt stúdíó. Þeir byrjuðu að skrifa
Ok Computer árið 1996 og í septem-
ber sama ár fóru þeir með handhelda
stúdíóið í St. Catherine’s Court, sem
er höll í Bath á Englandi. Þar tóku
þeir upp Ok Computer, langt frá há-
vaða stórborganna.
Þeir tóku upp í mismunandi her-
bergjum hallarinnar sem gerði upp-
tökurnar skrítnari og auðveldari.
Radiohead spilaði í danssalnum
meðan Nigel Godrich tók upp á
bókasafninu og Thom Yorke söng
Exit Music (for a film) í kulda stein-
byggðu forstofunnar. Platan var
næstum því tilbúin jólin 1996. Þeir
kláruðu svo og mixuðu plötuna í
janúar og febrúar 1997. Ok Comput-
er var gefin út í júní 1997 og fékk
mörg verðlaun, m.a. Grammy-verð-
launin.
Eftirvæntingarnar voru miklar
þegar Radiohead tók sér frí áður en
þeir byrjuðu á næstu breiðskífu, Kid
A.
Kid A
Fjórða breiðskífan, Kid A, kom út
2. október 2000 og sló í gegn. Kid A
náði fyrsta sæti bandaríska breið-
skífulistans og færði Radiohead
Grammy-verðlaunin. Hljómsveitin
sneri aftur í stúdíóið og kláraði 5.
breiðskífuna, Amnesiac, í nóvember
2000. Hún kom út 4. júní 2001.
Upptökum á 6. breiðskífu Radi-
ohead er lokið og er hún væntanleg
á næsta ári. Undirritaður bíður
spenntur...
Ari Marteinsson