Muninn

Volume

Muninn - 01.11.2002, Page 4

Muninn - 01.11.2002, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER MUNINN Hægri eða vinstri? Þetta er spurning sem sumir eru að spyrja sig, öðrum er al- veg sama og enn aðrir vita ná- kvæmlegt svar við þessari spumingu, eða alla vega halda að þeir viti það. Ég er einmitt einn þeirra síðustu, sem held að ég viti hið rétta svar við þessari spumingu. Veltum þessu að- eins fyrir okkur. Er virkilega bara um tvennt að velja, hægri eða vinstri. Ég vil meina það að hægri eða vinstri sé mæli- kvarði á hvort maður er kapít- alisti eða sósíalisti. Þetta er samt mikil einföldun á flóknu máli, en gaman er að setja upp þessa einföldun. En hvað merkja þessi hugtök, sósíalismi og kapítalismi. Skoðum það: Sósíalismi: Þjóðskipulag þar sem jarð- næði, auðlindir og framleiðslu- tæki em eign samfélagsins og nýting þeirra miðuð við hag allra þegnanna. Sósíalismi á að tryggja réttláta skiptingu auð- æva þjóðfélagsins þannig að stéttaskipting og efnahagslegt misrétti hverfi. Kapítalismi: Þjóðskipulag sem grundvall- ast á einkaeignarétti á fram- leiðslutækjum. Framleiðslan miðast við að ná hámarksgróða og stýrist af frjálsum markaði með vöm, þjónustu, fjármagn og vinnuafl. (tekið upp úr Alfræðiorða- bók) Ef við berum þetta saman sér fólk strax misjafnar áherslur. Sumir segja að sósalistar séu menn sem vilja að ríkið eigi allt og að kapítalistar séu menn sem vilja að ríkið eigi? ekki neitt. Ég ætla ekki á þetta plan, að fara í aðra áttina einungis, því þessar stefnur eru báðar lík- legar til góðs. Sósíalisminn hugsar um velferð einstaklinga og kapítalisminn stuðlar að aukinni framförum og lífs- kjarabótum. Reyndar er það svo að í umhverfi þar sem kap- ítalismi ræður ríkjum er mikil hætta á misskiptingu auðsins, sem lýsir sér í því að þeir ríku verða ennþá ríkari og þeir fá- tækari verða fátækari. í þessu efni er sósíalismi betri hugsun. Þess vegna ættu menn að reyna finna rétta milliveginn, því að öfgar eru yfirleitt aldrei af því hinu góða, t.d. Þýskaland fyrir stríð. Ég ætla að leyfa mér það að líkja sósíalisma við hug- myndir dýranna í Hálsaskógi, þar sem allir í skóginum eru vinir, en kapítalismi fylgir lög- máli náttúrunnar, þeir hæfustu lifa af. Ef ég þyrfti að velja, þá myndi ég velja fyrri skoðunina. Mér finnst að allir einstak- lingar eigi að hafa sömu rétt- indi. Það er, réttindi til að fæð- ast, lifa og deyja. Þótt maður fæðist í fátækri fjölskyldu, þá á maður að eiga sömu mögu- leika. Þeir möguleikar eru fyr- ir hendi, sé maður nógu dug- legur. Það var gerð rannsókn í Bandaríkjunum þar sem það var athuguð fylgni milli þess að stjórnendur fyrirtækja kæmu frá efnuðum fjölskyldum eða fátækum. Það olli miklum vonbrigðum meðal rannsóknar- manna að sjá að þar var lítil fylgni milli þessara breyta, en aftur á móti sáu þeir að það var mikil fylgni þess hvaðan fólk var. Það reyndist vera að mik- ill meirihluti stjórnenda í fyrir- tækjum var úr litlum byggðar- kjörnum. Það var ekki afger- andi munur kynjanna, en þessi munur var, lítil byggðarsamfé- lög, 35.000 og færri. Þetta eru fréttir fyrir suma, að í Bandaríkjunum hafi menn mikla möguleika. Þetta vilja menn ekki viðurkenna því það er auðséð mál að menn draga alltaf upp það versta, og í Bandaríkjunum (BNA) er hægt að draga upp mikið af því versta því BNA eru upplýstasta þjóðfélag sem hægt er að finna, þótt einstaklingarnir upplýsi sig ekki, þá er nánast allt gert fyrir opnum dyrum. Slíkt er ekki að ræða í löndum t.d. írak, Kúbu, Kína eða Sádí-Arabíu. Þannig að það er mjög auðvelt að finna einhvern sora frá BNA, en erfitt að finna eitthvað sem gerist í Irak eða á Kúbu, þótt að persónulega væri ég al- veg til í að búa á Kúbu, þrátt fyrir stjórnina þar. Þegar á botninn er komið er þetta spurningin um eitt atriði, velja á milli: Annars vegar frelsis, réttar- ins til að stofna og eiga þitt eig- ið fyrirtæki, ráða hvar þú vinn- ur og hins vegar að velja hag heildarinnar, þar sem heildin á fyrirtækin og þar sem stjóm- endur hafa vit fyrir fólkinu í samfélaginu, þar sem allir eru sem jafnastir. Mín skoðun er ljós, ég er nógu sjálfstæður til að taka ábyrgð á gerðum mínum, ég er tilbúinn til að leggja mikið á mig til að skaffa pening fyrir fjölskyldu minni. Ég öfunda ekki þessa verðbréfabraskara sem græða milljónir á viku og þurfa ekki að hafa fyrir neinu, því þeirra veröld getur hrunið hvenær sem er. Aftur á móti leyfi ég mér að efast um jafn- aðarhugsunina, sem einkennir sósíalisma. Ég vísa bara í rúss- neskan rithöfund sem var tals- maður bændasósíalisma í Rúss- landi, Lév Níkolajevítsj Tol- stoj, en hann sagði eitt sinn: „Sósíalisminn mun aldrei geta útrýmt fátækt, misrétti og mis- skiptingu auðsins.” Þar er ég alveg sammála honum, því segi ég að grunnhugsun sósíalisma sé fallin og standi ekki stoð. Hugsið ykkur samfélag þar sem allir eru jafnir, ein stétt. Hverjir vinna þá verkamanna- vinnuna, sem er verr launuð en hin vinnan, eða þá hver vinnur dýru vinnuna án þess að fá meira út úr því. Einhver verð- ur að vinna hana. í samfélagi þar sem algjör jafnaður ríkti, þá held ég að yrði lítil framför, því að það er ekkert sem hvetur fólk áfram. Það vantar drif- kraftinn, hvatninguna til að skara fram úr. Það verður heldur aldrei til samfélag þar sem frjáls mark- aður fær algjörlega að ráða. Slíkt samfélag gengur ekki upp og þar með er grunnhugsun kapítalisma fallinn. Svo að í þessu máli gildir eins og í svo mörgum öðrum, að Hinn gullni meðalvegur er bestur. Þá er það bara að finna þennan meðalveg. Atli Þór Ragnarsson forvarnarfulltrúi HIMA Bréf til blaðsins Jeg hef verið hér í skólanum á fimmta ár og sje ekki eftir neinu. Og afhverju er það? Af þeirri einföldu ástæðu að jeg er á fjelaxfræðibraut. Nýnemar ef það er einhvem tíman ástæða til að lesa grein þá er það núna. Á fjelaxfræðibraut er öll elíta skólans, við erum an- arkistar, hugsuðir, skáld og mestu djammarar sem sögur fara af. Okkur er ekkert óviðkomandi og við lát- um þjóðfjelaxlegar bábiljur okkur varða með pólitísk- um og málefnanlegum umræðum. Allt sem telst heil- brigð skynsemi er okkur ofviða því aldrei hefur kom- ið útskýring á því hvað hún er, því byggjum við okk- ar eigin sem felst í því að átta okkur á því að allt er í heiminum hverfult og lifum við því lífinu til hins ýtrasta. Ef þið viljið sjá afrakstur fjelaxfræðibrautar lítið þá einungis á Þorlák Axel Jónsson sem er virtur- kennari hjer á bæ. Eitt sinn var hann pönkari með há- leitann málstað en núna er hann snillingur og hverju er það að þakka? Jú fjelaxfræðibraut. Að læra samviskusamlega er bara bull því ljósritun- arkort er eina sem maður þarf að eiga og maður ljós- ritar glósurnar hjá þeim villuráfandi sem ennþá mæta í tíma. Skólimn hjá okkur takmarkast við það að lesa í fjórar vikur á ári sem kallast djammlausatímabilið (eða próftíð). Allt sem telst raunvísindi er bara fyrir nörda sem halda statt og stöðugt að stærðfræði sje eitthvað mik- ilvægt, því líkt hestabull! Enginn vill fara á ólympíu- leikanna í eðlisfræði en allir vilja koma á hina margrómuðu Fjelaxsfræðiárshátíð því hún er af- sprengi okkar. Okkar sem erum hin guðs útvalda þjóð því við völdum að lifa í sátt við sjálfa okkur á fjelaxfræðibraut í stað þess að lifa í sjálfsblekkingu stærðfræði bókanna. Nýnemar lyftið lífi ykkar upp á annað plan, gangið til liðs við okkur sem látum skólagönguna vera nautn og fjör, en ekki eitthverja myrkviða gátu í svartholi stærðfræðinnar og absrakt lögmálum raunvísinda. Verum stolt á afsprengi hugarorku, marxisma, sið- fræði og freudisma.. .. .fjelaxfræðibraut! Karvel Pálmason 4.F

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.