Kirkjuritið - 01.06.1959, Page 10
Rœða fráfarandi biskups við biskupsvígslu
séra Sigurbjarnar Einarssonar
21. júní 1959.
Jerúsalem, sem í hœöum er,
er frjáls, og liún er móðir vor.
Gal. Jf, 26.
Kirkja Krists er á hæðum.
Það var þegar ljóst Páli postula. Kristur var á hæðum. Það-
an kallaði hann Pál til fylgdar við sig, er ljós skein yfir hon-
um sólu bjartara af himni. Og með Drottni þar var söfnuður
hans, þeir er horfnir voru heim. Þangað horfði Páll og vildi,
að svo gjörðu allir kristnir menn: Föðurland vort er á himni.
En þó er kirkjan jafnframt jarðnesk að dómi Páls. Þar voru
að starfi fylgjendur Krists, sem þráðu að vinna fyrir ríki hans
á jörðu, að Guðs vilji mætti verða svo á jörðu sem á himni.
Þannig er kirkjan í senn bæði himnesk og jarðnesk stofnun,
sem hlið Heljar munu aldrei verða yfirsterkari. Vér sjáum að
vísu aðeins hina jarðnesku líkamsaugum.
Því heiðloftið sjálft er huliðstjald,
sem hæðanna dýrð oss felur.
Aðal kirkjunnar lýsir Páll í tveimur setningum: Hún er
frjáls. Hún er móðir vor. Frelsiö og kœrleikurinn einkenna
hana.
Þessa er gott að minnast hvert sinn sem nýr biskup er vígð-
ur í þjónustu kirkjunnar.
Frelsi hefir löngum um aldirnar verið höfuðeinkenni á kirkju
íslands. Kom það snemma fram hjá íslendingum, að þeir vildu
trúa því og fylgja því, sem Heilagur Andi blési þeim í brjóst,
að væri satt og rétt, og þráðu það eitt að leiðarstjörnu. En þeir
hafa lítt hirt um það, að á þá væri lagt ánauðarok bókstafs og
kennisetninga manna. Þeim hefir skilizt það, að Kristur vill
ríkja yfir frjálsum mönnum, og þar sem andi hans er, þar er