Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Side 15

Kirkjuritið - 01.06.1959, Side 15
KIRKJURITIÐ 253 jaðri stórrar borgar og glímdi í huganum við áhyggju- samlegt einkamál, og djúpt í vitund minni ómuðu orðin: Jafnvel hárin á höfði yðar eru öll talin. Og þá sé ég lít- inn maur, sem hafði villzt út á brautarteininn og skreið eftir honum og hraðlestin var að koma. Brot úr mínútu og litla dýrið var kramið, horfið. Hver gætti þess? Hvar var miskunnin? Og hvað var ég, áhorfandinn að þessari hendingu, hvað var ég? Var ég ekki annar blindinginn frá, fetandi braut út í bláinn, meiningarlausa blindgötu, og marinn á næsta augnabliki undir einhverju hinna mörgu hjóla, sem snúast í járnkaldri vélasamstæðu al- heimsins? Er tilveran miskunnsöm? Svörin eru tvíbent. Ég skil það vel. Þau eru tvíbent, ef hlustað er á hina mörgu óm- stríðu tóna af strengjum mannshjartans. Þau eru það, ef hlustað er eftir vitnisburði trúarbragða og spekinga. Menn hafa lotið mörgum drottnum, tignað marga guði. Hver voru þau máttarvöld, sem maðurinn nálgaðist í ogglausu trausti á það, að þau væru alls kostar miskunn- söm? Ég þekki þau ekki. Vitringar hafa brotið heilann Um lífsgátuna, tilverurökin. Hverjar eru þær niðurstöður þeirra, sem hníga eindregið á þá sveif, að tilveran sé miskunnsöm í eðli sínu? Ég þekki þær ekki. En hér talar einn, sem gengur út frá því, að miskunn- semi sé sá grunntónn í barmi altilverunnar, að vér séum þá og því aðeins í samræmi við eðli hennar, ef vér erum miskunnsamir. Orð guðspjallsins hljóma sem boðorð. En þau eru fyrst- og fremst boðskapur. Hvað tjóar að segja þér, hvernig þú eigir að vera, nema þér sé sagt um leið og fyrst, hver séu rökin í grunni þeirrar tilveru, sem þú ert hluti af? Hér talar Jesús frá Nazaret. Og hann segir blátt áfram: Vertu líkur Guði, föður þínum. Hvernig? Þú færð ekki líkzt honum að valdi né viti. En þú getur líkzt honum um atferli í einni grein, þú getur verið miskunnsamur í líkingu við hann, þú getur líkzt honum að hjartalagi. Og

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.