Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1959, Qupperneq 23

Kirkjuritið - 01.06.1959, Qupperneq 23
KIRKJURITIÐ 261 Sparifé gamla fólksins. Nú er sú kynslóð að verða gömul, ganga úr leik og setjast út í horn, sem miðaldra menn og þaðan af yngri eiga mest opp að unna. Kynslóðin, sem vann lokasigurinn í sjálfstæðis- baráttunni, hóf nýsköpun atvinnuveganna og ruddi þægind- unum brautina. Margt af þessu fólki kostaði óhemju miklu til þess að skapa oss börnum sínum betri og bjartari framtíð. Ekki erfiði sitt eitt, heldur mest af aflafé sínu lagði það í lófa framtímans. En flestir spöruðu þó meira og minna saman sem sjúkdómstrygging og ellistyrk. Allir vita, hvernig beinar og óbeinar gengisfellingar síðustu áratuga hafa gert krónur þessa fólks að fimmeyringum. Undarlegt, hve fáir hafa samt um það talað, furðulegast þó að löggjafarnir skuli hafa haft brjóst til þess. Óskaplegur óréttur hefir verið framinn þarna að mínum dómi, og minnst af honum verður bætt héðan af. Samt er enn unnt að bjarga nokkru við í þessum efnum, og það ætti sann- arlega að gerast tafarlaust. Til þess eru áreiðanlega ráð, án þess að gengið sé á annarra rétt né ausið fé í óverðuga. Ef hvorki vantar skilninginn né viljann, munu hinir vísu löggjafar hafa þau í hendi sér. Hitt er bæði ómaklegt og ábyrgðarhluti að launa því fólki, sem hér á kröfuna og réttinn, erfiði sitt og þjóðhollustu með því að brenna eigur þess í eldi verðbólgunnar, — og koma þeim sumum á vonarvöl, sem sízt hafa til þess unnið. Hér mætti í ýmsum tilfellum nú á dögum heimfæra orð Þor- steins Gíslasonar, sem hann kvað um móðurina: Að hossi þér gæfan, en hún eigi bágt, er hróplegust synd móti skaparans lögum. Iþróttir séra Hallgríms Péturssonar. Vinur minn, Guðmundur Jósafatsson í Austurhlíð, ræðir í bréfi um það, sem þegar er leiðrétt, að Magnús á Heiði orti vísuna: Þótt ég sökkvi o. s. frv. Vísar í því sambandi til Guð- uiundar fróða í Hvammi (d. 1913), sem róið hafði með Magn- úsi, þegar vísan varð til. En í sambandi við þetta getur bréf- fitarinn annars skemmtilegs atriðis, og kemur hér sá kafli: ..... Guðmundur gerði sér mjög tíðrætt um andlegt og lík- amlegt atgjörvi Magnúsar. Því síðarnefnda til sönnunar sagði

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.