Kirkjuritið - 01.06.1959, Page 38
Séra Jóhann Kr. Briem
fyrr sóknarprestur á Melstað.
Hann lézt í sjúkrahúsi í
Reykjavík 8. júní síðastlið-
inn eftir alllanga legu. En
veill að heilsu hafði hann
verið um nokkur undanfar-
in ár.
Jóhann Kristján hét hann
fullu nafni, fæddur í Hruna
í Árnessýslu 3. des. 1882.
Foreldrar hans voru séra
Steindór Briem og kona
hans, Kamilla Sigríður Pét-
ursdóttir Hall. Faðir séra
Steindórs var séra Jóhann
Kristján Briem prófastur í
Hruna Gunnlaugsson, sýslu-
manns á Grund i Eyjafirði,
er fyrstur tók upp Briems-
nafnið og er því ættfaðir
Briems-ættar, sem nú er
fjölmenn orðin, langt fram
Séra Jóliann Kr. Briem. yfir það, sem ættarnafnið
segir til. Má geta þess, að
þau systkin Tryggvi bankastjóri Gunnarsson og Kristjana, móðir
Hannesar Hafsteins, voru dótturbörn Gunnlaugs sýslumanns.
Séra Jóhann lauk stúdentsprófi 1903 og embættisprófi frá
prestaskólanum 1907, hvorutveggja með fyrstu einkunn. Næstu
fimm ár var hann kennari við barna- og unglingaskóla á Eyrar-
bakka. En 27. júní 1912 var honum veitt Melstaðarprestakall
í Miðfirði, samkvæmt kosningu safnaðar, og vígður var hann
28. sama mánaðar. Þjónaði hann því prestakalli í 42 ár eða
þar til hann fékk lausn frá embætti og fluttist til Reykja-
víkur vorið 1954.
Á fyrsta prestsskaparári sínu, 5. október 1912, kvæntist sera