Kirkjuritið - 01.06.1959, Page 43
KIRKJU RITIÐ
281
Söguleg opinberun spámanna Guðs og Jesú Krists hraðar
mjög trúar- og siðferðislegri þróun mannkynsins. Eðli þessara
heilögu opinberuðu sanninda kemur ljóslega fram í þessum
orðum Jesú: „Verið því fullkomnir, eins og yðar himneski
faðir er fullkominn."
Fullkomnir geta menn að sjálfsögðu eigi orðið allt í einu,
en þeim ber af fremsta megni að helga sig Guði og æðri lífs-
hugsjónum og stefna markvíst að því að fullkomnast í öllu
góðu samkvæmt Guðs heilaga kærleiksvilja. Hinar guðlegu hug-
sjónir og sannindi eru ekki aðeins himneskt leiðarljós á vegum
manna í andlegum skilningi, heldur og innri skapandi náðar-
máttur í sál þeirra, sem lyftir þeim duftinu frá til æðri heim-
kynna lífs og ljóss. Jesús sagði því: „Sælir eru þeir, sem heyra
Guðs orð og varðveita það.“ Jesús sagði og: „Orðin, sem ég hefi
talað við yður, eru andi og líf.“ Guðfræðilegum sannindum ber
mönnurn því að sýna hina fyllstu hollustu og ræktarsemi og
móta allt sitt líf sem bezt í anda þeirra.
Kristilegt, bróðurlegt kærleiksþel á að samtengja mannkyn
allt og bróðurleg samvinna að æðri þroska og siðferðilegu tak-
marki. Mannlífið er af guðlegum uppruna og guðlegs eðlis með
ffiðra heilögu takmarki. Það á að vera mönnum heilagt, og þeir
mega eigi óvirða það með einhliða og ljótum lýsingum og
slæmum dómur um það, sem geta tíðum verið harla rangir og
sf illum toga spunnir. Létt og góðleg kímni og fyndni með sið-
ferðilega alvöru að baki getur hins vegar oft verið heppileg
til að benda á misfellur. Mönnum ber að leggja sig alla fram
til þess að fegra mannlífið og göfga það. Mönnum ber að forð-
ast alla hvatvísi og hleypidóma, en ástunda í hvívetna alhliða
dómgreind og sem fyllsta réttsýni og rétt mat á mönnum og
^eálefnum, til þess að sérhver maður fái sem bezt uppeldi og
menntun og starf við sitt hæfi, og verði sem beztur maður og
Þegn síns þjóðfélags og mannfélagsins yfirleitt. Eigi má van-
meta hin veigaminni störf, en vanda þarf sem bezt val manna
r hin áhrifaríkustu og þýðingarmestu störf. í hinu bróðurlega
samstarfi að heilögu takmarki mannlífsins til æðra lífs og
fullkomnunar munu menn hljóta blessun Guðs og sanna far-
sæld hér í lífi og annars heims.
Finnbogi Kristjánsson.