Kirkjuritið - 01.06.1959, Qupperneq 48
286
KIRKJURITIÐ
talsins um gervallt landið. 51 kór naut söngkennslu á vegum Kirkju-
kórasambands Islands í samtals 73 vikur, fjórtán organleikarar og
organleikaraefni stunduðu nám í söngskóla þjóðkirkjunnar og ellefu
sóttu námskeið á vegum Kirkjukórasambands Islands. Kennari nám-
skeiðisins var Kjartan Jóhannesson. Sex kirkjukórasöngmót voru
haldin á starfsárinu og 57 kirkjukórar sungu 80 sinnum opinberlega,
auk söngs við allar kirkjulegar athafnir.
Þá las féhirðir reikninga sambandsins og voru þeir einróma sam-
þykktir, svo og f járhagsáætlun þessa árs.
Mikill áhugi og einhugur ríkti á fundinum fyrir söngmálum þjóð-
kirkjunnar og var söngmálastjóra, Sigurði Birkis, og stjórninni í heild,
þakkað vel unnið starf á árinu. Stjórn Kirkjukórasambands Islands
skipa: Sigurður Birkis, söngmálastjóri, formaður; Jón Isleifsson,
organleikari, ritari; séra Jón Þorvarðarson, prestur, gjaldkeri; Jónas
Tómasson, tónskáld, Isafirði; Eyþór Stefánsson, tónskáld, Sauðár-
króki; Bergþór Þorsteinsson, organisti, Reyðarfirði; Hanna Karls-
dóttir, frú, Holti.
Úveitt prestakall
Æsustaðaprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi (Holtastaða-,
Bólstaðarhlíðar-, Bergsstaða-, Auðkúlu- og Svínavatnssóknir).
Heimatekjur:
1. Árgjald prestssetursins ................. kr. 200.00
2. Árgjald af íbúðarhúsi ..................... — 1710.00
3. Fyrningarsjóðsgjald ....................... — 300.00
4. Árgjald af útihúsum ....................... — 848.57
5. Endurbyggingarsjóðsgjald .................. — 60.00
Umsóknarfrestur til 15. ágúst.
Reykjavík, 4. júlí 1959.
Biskup Islands.