Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 6

Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 6
52 KIRKJURITIÐ — Það er langt þangað, sem ég þarf að komast, endalaus ganga um annarlega slóð, ferðin heim inn í lijörtu mannanna. Og þó svo ég talaði tungum engla“. Þetta segir skáldið um sín, um mannleg orð. Hvað um lians, sveinsins, sem María bar í fjárhúsinu? Hann kom til eignar sinnar og lians eigin menn tóku ekki við lion- um. Hann liélt áfram, nýjar þjóðir, nýjar kynslóðir, upp aft- ur og aftur til móts við hjarta mannsins, hér var liann á Is- landi í þúsund ár, í þúsund ár „hjálpin sama, Jesú guðdóms- mynd“. Færist liann nær eða fjær, fara áhrif hans vaxandi eða þverrandi, fjölgar þeim eða fækkar, sem hlusta, þegar hann talar, lilýða, þegar hann kallar, þiggja, þegar liann vill hjálpa? Löndin hin á hnettinum hafa færst nær og enda aðrir hnettir líka, en ríkið lians, færisl það nær yfir Islandi? Leið þess ríkis frá liimni til jarðar liggur ekki um líflaust rúm og geim, það flyzt ekki með geimskotum og gervilmött- um, ekki einu sinni á englavængjum, leið þess liggur um hjörtu manna, það flyzt frá lxug til hugar með orðinu frá Guðs hjarta, orði kærleikans, sem er Jesús Kristur, orði fagn- aðarins og friðarins í honum, sem liann hefur falið kirkju sinni að boða. Ríkið lians fæðist og byggist upp við lifandi snertingu anda lians og anda manns. En þessi snerting krefst sinna skilyrða frá mannsins hlið, og frumskilyrðið nefnir Jesús í uppliafi Fjallræðunnar, og það er — fátœkt. Misskildu mig ekki, hann á ekki við fátækt hvers kyns, liann talar um fátækt andans. Hver er fátækt andans? Auðmýkt fyrir undri lífsins, stóru, djúpu, ábyrgðarmiklu, auð- mýkt frammi fyrir undri þess að vera til, raunsætt mat á að- stöðu hins veika, synduga, dauðlega manns, viðurkenning þess, að „án Guðs náðar er allt vort traust óstöðugt, veikt og hjálp- arlaust“.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.