Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 14

Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 14
60 KIRKJURITIÐ LHS þarf að safna 50 milljónum (ísl. króna) í þessu skyni. Síðustu árin höfum vér þó unnið mest austur í Hongkong. Þar búa nú um 3,5 milljónir manna. Flóttafólkið flæðir þangað frá Kína. Samhliða ágætri aðstoð landstjórnarinnar störfum vér þar að matvælagjöfum, sjúkrahjálp, húsnæðismálum, verk- kennslu og lýðfræðslu. Boðun fagnaðarerindisins er þó að sjálfsögðu slagæð þessa alls. Þegar litið cr til berklanna, hung- ursins, atvinnuleysisins, húsnæðisleysisins og vonleysisins, sem við er að glíma, getur svo virzt sem þessi hjálparstarfsemi sé aðeins eins og dropi í liafinu. En samt göngum vér þess ekki duldir að þessi dropi hefur þrátt fyrir allt, bjargað mörgu- mannslífi og endurlífgað það í þessari vonarsnauðu veröld. Þá höfum vér og mikið með höndum í landinu helga. Bæði í Jerúsalein og sveitahéruðum Jórdaníu eru fjölmargir min'n- ingastaðir, sem leiða hug vorn að viðburðum þeim, sem Biblían greinir frá. Starfsemi vor þar heyrir til liinnar þriðju greinar. 3. Aðstoð við vanþróuð lönd og flóttafólk. Með hverju ári liefur það orðið æ meira knýjandi að kristin kirkja henti á þörfina og beitti sér fyrir hjálparstarfi á þess- um sviðum. Er það og beint framhald þess starfs, sem trúboðs- stöðvarnar liafa Iiaft með höndum. Ásaint flóttastofnunar Sam- einuðu þjóðanna, starfrækjum vér liinn stóra Ágústu-Viktoríu- spítala í Jerúsalem — með um 300 sjúkrarúmum — og enn fremur mikla umferðasjúkrahjálp. Er unnið að aukningu þess- arar starfseini. Og nú er einmitt verið að vinna að byggingu verknámsskóla, rétt fyrir utan Jerúsalem. Þar verður heima- vist fyrir 120 nemendur. Hliðstætt starf ynnum vér af liöndum til aðstoðar alsírísk- um flóttamönnum í Túnis og Marokkó. Er það í náinni sam- vinnu við flóttamannanefnd Sþ. og Bauða Krossinn. Nú er einnig liafinn nýr þáttur í Alsír sjálfu. Þar hefur „kristin hjálparnefnd“ liafið baráttu gegn sjúkdómum, hungri og menntunarleysi, sem þjakar liina þrautpíndu íhúa þessa lirjáða lands. Hvernig öflum vér peninga til þessa og margs annars? Vér leitum til allra presta og safnaða um samskot. Þá skipu- leggjum vér skyndi-fjáraflanir innan livers biskupsdæmis til styrktar ákveðnum verkefnum. Ennfremur er leitað aðstoðar stofnana, skóla og góðgjörðafélaga. Einu sinni á ári sendum

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.